Menning

Mest seldu bækur ársins 2020: Nýr bóksölukóngur krýndur

Jakob Bjarnar skrifar
Ólafur Jóhann Ólafsson náði að velta Arnaldi Indriðasyni úr hásæti sínu en þar hefur hann setið fastur fyrir undanfarna áratugina.
Ólafur Jóhann Ólafsson náði að velta Arnaldi Indriðasyni úr hásæti sínu en þar hefur hann setið fastur fyrir undanfarna áratugina. vísir/vilhelm

Snertingin hans Ólafs Jóhanns Ólafssonar endaði sem mest selda bók ársins samkvæmt Bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda.

Arnaldur Indriðason hefur nánast haldið toppsætinu alveg samfellt frá aldamótum. Síðast þegar tókst að velta Arnaldi úr hásætinu var árið 2012

Þá kom fram einhver óvæntasti smellur bóksölunnar, eða svarti hestur eins og þau í bókabransanum kalla slík fyrirbæri; Gísli á Uppsölum eftir Ingibjörgu Reynisdóttur. Árin á undan hafði Arnaldur haft tögl og hagldir á sölulistum.

Þannig að uppgjörslistirnar yfir bóksölu ársins 2020 sæta þannig nokkrum tíðindum. 

Rithöfundar geta verið mjög ánægðir með árið

„Já,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Fíbút, sérfræðingur Vísis í bóksölunni. „Þetta er ár hinna íslensku skáldverka, bóksala var með besta móti og salan dreifðist á óvenju marga titla. Það veldur því að líklega voru engin einstök sölumet slegin en 

í heildina lítur út fyrir að bóksalan þessa þýðingamiklu tvo lokamánuði ársins hafi aukist um 15 prósent frá árinu áður. 

Enginn nýliði nær að stimpla sinn inn á meðal 30 mest seldu íslensku skáldverkanna og karlmenn eiga þar aðeins þriðjung verka.“

Bryndís Loftsdóttir hjá Fíbút segir að árið 2020 hafi verið skáldsagnaár.

Þannig má segja að Covid-árið, sem margir vilja bölva í sand og ösku, hafi verið afskaplega vænt og gott við rifhöfunda. Stóraukin voru framlög til listamanna en bróðurparturinn rann til rithöfundanna, umtalsverð hækkun varð á greiðslum úr bókasafnssjóði á árinu, hljóðbókaútgáfa jókst verulega sem og sala á skáldskap. Rithöfundar hugsa því væntanlega til þessa árs með nokkurri ánægju.

Leikararnir Ævar Þór og Gunnar Helgason hopa

En sé áfram litið sérstaklega til listanna þá voru einnig verulegar sviptingar hjá barnabókahöfundum. 

„Orri óstöðvandi náði nú í sinni þriðju tilraun efsta sæti barnabókalistans og 

Birgitta Haukdal setti nýtt met með því að eiga samtals 5 titla á meðal tuttugu mest seldu barnabókanna auk þess að hreppa þar annað sætið. 

Leikara-rithöfundarnir Ævar Þór Benediktsson og Gunnar Helgason, sem undanfarin ár hafa skipt á milli sín efstu sætum listans hopa í ár, Ævar niður í þriðja sætið og Gunnar í það tíunda,“ segir Bryndís.

Á barnabókalistanum sjást tveir nýliðar. Sólborg Guðbrandsdóttir er óumdeildur nýliði ársins með bókina Fávita, sem lenti í ellefta sæti yfir mest seldu bækur ársins og fjórða sæti barnabókalistans. Nýr höfundur á barnabókalistanum er einnig Rut Guðnadóttir, dóttir Guðna Th…

„Og þó engin ævisaga nái inn á topp 20 listann þá verður það líka að teljast til tíðinda að liðlega tvítugur drengur eigi mest seldu ævisögu ársins. Það er auðvitað Herra Hnetusmjör eða Árni Páll Árnason, sonur Árna Magnússonar, fyrrverandi þingmanns og félagsmálaráðherra,“ segir Bryndís.

Ólafur Jóhann var í höfundatali Vísis á árinu og sagði þar á meðal annars að viðtökur skiptu hann miklu máli. Hann getur ekki kvartað undan þeim, Snerting hlaut feikigóðar viðtökur, svo góðar að hann náði að velta kóngi úr hásæti sínu.


Topplistinn

Árslistinn 2020

  1. Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
  2. Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
  3. Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
  4. Vetrarmein - Ragnar Jónasson
  5. Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
  6. Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson
  7. Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir
  8. Syngdu með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal
  9. Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason
  10. Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson
  11. Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir
  12. UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld
  13. Krakkalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
  14. Dýralíf - Auður Ava Ólafsdóttir
  15. Lára lærir að lesa - Birgitta Haukdal
  16. Dauðabókin - Stefán Máni
  17. Verstu kennarar í heimi - David Walliams
  18. Fjarvera þín er myrkur - Jón Kalman Stefánsson
  19. Lára fer í leikhús - Birgitta Haukdal
  20. Skipulag - Sólrún Diego

Íslensk skáldverk

  1. Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
  2. Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
  3. Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
  4. Vetrarmein - Ragnar Jónasson
  5. Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir
  6. Dýralíf - Auður Ava Ólafsdóttir
  7. Dauðabókin - Stefán Máni
  8. Fjarvera þín er myrkur - Jón Kalman Stefánsson
  9. Eldarnir : Ástin og aðrar hamfarir - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
  10. Undir Yggdrasil - Vilborg Davíðsdóttir
  11. Yfir bænum heima - Kristín Steinsdóttir
  12. Blóðrauður sjór - Lilja Sigurðardóttir
  13. Blóðberg - Þóra Karítas Árnadóttir
  14. 107 Reykjavík - Auður Jónsdóttir og Birna Anna Björnsdóttir
  15. Sykur - Katrín Júlíusdóttir
  16. Hansdætur - Benný Sif Ísleifsdóttir
  17. Konan sem elskaði fossinn : Sigríður í Brattholti - Eyrún Ingadóttir
  18. Aprílsólarkuldi - Elísabet Kristín Jökulsdóttir
  19. Ein - Ásdís Halla Bragadóttir
  20. Brúin yfir Tangagötuna - Eiríkur Örn Norðdahl
  21. Tíbrá - Ármann Jakobsson
  22. Næturskuggar - Eva Björg Ægisdóttir
  23. Truflunin - Steinar Bragi
  24. Bróðir - Halldór Armand
  25. Andlitslausa konan - Jónína Leósdóttir
  26. Svínshöfuð - kilja - Bergþóra Snæbjörnsdóttir
  27. Tengdadóttirin I - Guðrún frá Lundi
  28. Dauði skógar - Jónas Reynir Gunnarsson
  29. Morðin í Háskólabíó - Stella Blómkvist
  30. Tengdadóttirin II - Guðrún frá Lundi

Íslenskar barna- og ungmennabækur

  1. Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
  2. Syngdu með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal
  3. Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson
  4. Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir
  5. Krakkalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
  6. Lára lærir að lesa - Birgitta Haukdal
  7. Lára fer í leikhús - Birgitta Haukdal
  8. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
  9. Öflugir strákar: Trúðu á sjálfan þig - Bjarni Fritzson
  10. Barnaræninginn - Gunnar Helgason
  11. Hetja - Björk Jakobsdóttir
  12. Hestar - Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring
  13. Vampírur, vesen og annað tilfallandi - Rut Guðnadóttir
  14. Þín eigin saga: Risaeðlur - Ævar Þór Benediktsson
  15. Iðunn og afi pönk - Gerður Kristný
  16. Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal
  17. Fíasól og furðusaga um krakka með kött í maga - Kristín Helga Gunnarsdóttir
  18. Brandarar og gátur 5 - Huginn Þór Grétarsson
  19. Þín eigin saga: Knúsípons - Ævar Þór Benediktsson
  20. Jól með Láru - Birgitta Haukdal

Þýddar barna- og ungmennabækur

  1. Verstu kennarar í heimi - David Walliams
  2. Jólaföndur : leikja-, lita og límmiðabók - Bókafélagið
  3. Ísskrímslið - David Walliams
  4. Dagbók Kidda klaufa 13 : Snjóstríðið - Jeff Kinney
  5. Jólasyrpa 2020 - Walt Disney
  6. Jól í Múmíndal - Tove Jansson
  7. Handbók fyrir ofurhetjur 5 - Horfin - Elias og Agnes Våhlund
  8. Milljarðastrákurinn - David Walliams
  9. Dagbók Kidda klaufa 12 : Flóttinn í sólina - Jeff Kinney
  10. Jólaföndur : engin skæri, bara gaman - Unga ástin mín
  11. Fótbolti - Meistarataktar - Rob Colson
  12. Ding! Dong! Komum að leika! - Astley Baker
  13. Hundmann 2 - Taumaus - Dav Pilkey
  14. Sögur úr Múmíndal - Tove Jansson
  15. Risaeðlugengið : Kappsundið - Lars Mæhle
  16. Skólaráðgátan - Martin Widmark / Helena Willis
  17. Lögreglu- og slökkvibílar - David Hawcock
  18. Mannslíkaminn - Ryan Hobson
  19. Söguperlur fyrir svefninn - Setberg
  20. Töfraeinhyrningurinn hennar Gurru gríss - Peppa Pig

Fræði og almennt efni

  1. Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson
  2. Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason
  3. UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld
  4. Skipulag - Sólrún Diego
  5. Kökur - Linda Ben
  6. Þess vegna sofum við : um mikilvægi svefns og drauma - Matthew Walker
  7. Skipulagsdagbók - Sólrún Diego
  8. Þegar heimurinn lokaðist - Davíð Logi Sigurðsson
  9. Vegahandbókin 2020 - Ýmsir höfundar
  10. Íslenskir vettlingar - Guðrún Hannele Henttinen
  11. Bubbi Morthens - ferillinn í fjörtíu ár - Árni Matthíasson
  12. Bakað með Elenoru Rós - Eleora Rós Georgsdóttir
  13. Kindasögur II - Aðalsteinn Eyþórsson og Guðjón Ragnar Jónasson
  14. Fimmaurabrandarar 2 - Fimmaurafélagið
  15. Ketóflex 3-3-1 mataræðið - Þorbjörg Hafsteinsdóttir
  16. Hrein Karfa - Kjartan Atli Kjartansson
  17. Prjónað á mig og mína - Lene Holme Samsøe
  18. Saumaklúbburinn - Berglind Hreiðarsdóttir
  19. Tíu skref í átt að innihaldsríku lífi - Bergsveinn Ólafsson
  20. Prjónað af ást - Lene Holme Samsøe
  21. Martröð í Mykinesi - Magnús Þór Hafsteinsson
  22. Samskipti - Pálmar Ragnarsson
  23. Keto - hormónalausnin - Gunnar Már Sigfússon
  24. Fuglinn sem gat ekki flogið - Gísli Pálsson
  25. Spegill fyrir skuggabaldur - Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
  26. Brimaldan stríða - Steinar J. Lúðvíksson
  27. Pottur, panna og Nanna - Nanna Rögnvaldardóttir
  28. Liverpool, flottasti klúbbur í heimi - Illugi Jökulsson
  29. Sumac - Þráinn Freyr Vigfússon
  30. 800 - fastan - Michael Mosley

Þýdd skáldverk

  1. Kóngsríkið - Jo Nesbø
  2. Silfurvængir - Camilla Läckberg
  3. Fórnarlamb 2117 - Jussi Adler Olsen
  4. Lygalíf fullorðinna - Elena Ferrante
  5. Jól í Sumareldhúsi Flóru - Jenny Colgan
  6. Í vondum félagsskap - Viveca Sten
  7. Brúðkaup í desember - Sarah Morgan
  8. Mitt (ó)fullkomna líf - Sophie Kinsella
  9. Á byrjunarreit - Lee Child
  10. Þerapistinn - Helene Flood

Ljóð og limrur

  1. Gervilimrur Gísla Rúnars - Gísli Rúnar Björgvinsson
  2. 140 vísnagátur - Páll Jónasson
  3. Látra-Björg - Helgi Jónsson
  4. Veirufangar og veraldarharmur - Valdimar Tómasson
  5. Innræti - Arndís Þórarinsdóttir
  6. Hetjusögur - Kristín Svava Tómasdóttir
  7. Draumstol - Gyrðir Elíasson
  8. Ljóðasafn Rumi - Söngur reyrsins - Jalaluddin Rumi
  9. Þagnarbindindi - Halla Þórlaug Óskarsdóttir
  10. Taugaboð á háspennulínu - Arndís Lóa Magnúsdóttir

Ævisögur

  1. Herra Hnetusmjör - hingað til - Sóli Hólm
  2. Glæpur við fæðingu - Trevor Noah
  3. Sögur handa Kára - Ólafur Ragnar Grímsson
  4. Berskjaldaður : Barátta Einars Þórs fyrir lífi og ást - Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
  5. Ellert - Ellert B. Schram og Björn Jón Bragason
  6. Dóttir - Katrín Tanja Davíðsdóttir
  7. Vigdís Jack : Sveitastelpan sem varð prestsfrú - Gyða Skúladóttir
  8. Brosað gegnum tárin - Bryndís Schram
  9. Svo týnist hjartaslóð : Þroskasaga Betu Reynis - Valgeir Skagfjörð og Elísabet Reynisdóttir
  10. Fæddur til að fækka tárum : Káinn - Jón Hjaltason





Fleiri fréttir

Sjá meira


×