Rússland ekki lengur frjálst 13. október 2005 15:13
Freedom House, virt bandarísk stofnun sem fylgist með þróun pólitískra réttinda og almenningsfrelsis, tilkynnti í gær að Rússland hefði verið fellt úr flokki "frjálsra" ríkja í heiminum í ársskýrslu stofnunarinnar. Jennifer Windsor, forstjóri Freedom House, segir að Rússland fylli nú flokk ófrjálsra ríkja: "Rússland stígur skref aftur á bak og færist niður í flokk ófrjálsra ríkja. Pútín forseti hefur í sívaxandi mæli þjappað valdi á sínar eigin hendur, ofsótt og hótað fjölmiðlum og fært lögregluna undir pólitíska stjórn." Windsor segir að hættuleg þróun í átt til alræðisvalds sé nú í Rússlandi: "Það er enn meiri ástæða til að hafa áhyggjur af þessu en ella vegna afskipta Pútíns forseta af stjórnmálum nágrannaríkjanna á borð við Úkraínu." Freedom House telur að almennt séð hafi stjórnmálafrelsi aukist í heiminum á árinu 2004. Framfarir urðu í tuttugu og sex löndum en afturför í ellefu. 46 prósent hinna 192 ríkja heims töldust frjáls, tuttugu og sex prósent ófrjáls en afgangurinn aðeins að hluta til frjáls. Harðstjórn er talin mest í átta ríkjum. Þau eru: Mjanmar, Kúba, Líbía, Norður-Kórea, Sádi-Arabía, Súdan, Sýrland og Túrkmenistan. Freedom House bendir sérstaklega á að lýðræði hafi vaxið ásmegin í Georgíu og Úkraínu þar sem mótmæli almennings hindruðu kosningasvindl. Stofnunin sér nokkur merki þess að frelsi sé að aukast í Mið-Austurlöndum, sérstaklega Norður-Afríku og almennt séð í íslömskum ríkjum. "Þótt framfarir hafi ekki orðið nægar í neinu arabaríki til þess að þau færist upp um flokk hafa hóflegar framfarir í frelsisátt orðið í Egyptalandi, Jórdaníu, Marokkó og Katar," segir í skýrslu Freedom House. Stofnunin segir að fall Rússlands niður úr flokki frjálsra í ófrjálsra ríkja í fyrsta skipti frá hruni Sovétríkjanna 1991 sé "afdrifaríkasta þróun ársins í stjórnmálum".
Erlent Fréttir Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Fleiri fréttir Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Sjá meira