Femínistafélagið skorar á stjórnvöld Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 16. maí 2014 11:49 Dreifing mynda og myndbanda þar sem einstaklingar eru undir lögaldri er barnaklám og verði það að vera forgangsmál lögreglu að uppræta það. vísir/afp
Femínistafélag Íslands lýsir yfir miklum áhyggjum vegna aukins fjölda mála þar sem kynferðislegum myndum og myndböndum af fólki er dreift án samþykkis. Dreifing slíkra mynda og myndbanda er ofbeldisfullur gjörningur og óhugnanleg afleiðing og birtingarmynd klámvæðingar. Fjölgun mála af þessu tagi verður að taka alvarlega því að afleiðingarnar fyrir þolendur eru skelfilegar. Þetta kemur fram í ályktun félagsins sem samþykkt var í gær. Þá krefst félagið þess að yfirvöld bregðist við þessu ástandi. Skoða þurfi lagarammann og hver staða þolenda sé í þessum málum. Dreifing mynda og myndbanda þar sem einstaklingar eru undir lögaldri er barnaklám og verði það að vera forgangsmál lögreglu að uppræta það. „Femínistafélagið skorar á stjórnvöld að veita auknu fjármagni í forvarnir, m.a. með fræðslu um traust, ábyrgð og virðingu í samskiptum. Einnig þarf að styðja vel við aðila sem vinna með þolendum kynferðisofbeldis til að skapa sterkara stuðningsnet fyrir þolendur, bæði í formi sálrænnar aðstoðar og lögfræðilegrar,“ segir í ályktun Femínistafélagsins. Aðalfundur Femínistafélags Íslands var haldinn í gær, fimmtudaginn 16. maí. Á fundinum var kosið í nýtt ráð félagsins en í því sitja frá fyrra ári: Auður Alfífa Ketilsdóttir, Brynhildur Heiðar-Ómarsdóttir Elva Björk Sverrisdóttir, Guðni Rúnar Jónasson og Una Hildardóttir. Nýjar ráðskonur eru: Eyrún Eyþórsdóttir, Gísli Garðarsson, Katrín Þorgerðar Pálmadóttir, María Lilja Þrastardóttir, Ólöf Dóra Bartels Jónsdóttir, Rósa Björk Bergþórsdóttir og Þóra Kristín Þórsdóttir.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira