Óþekktir aðilar kaupa Yukos 20. desember 2004 00:01
Áður óþekkt leppfyrirtæki keypti í gær meirihlutann í einu stærsta olíufyrirtæki heims, rússneska olíurisanum Yukos. Flest þykir benda til þess að rússnesk stjórnvöld séu með puttana í málinu. Kaupin í gær eru sveipuð mikilli dulúð enda var hæstbjóðandinn fyrirtæki sem enginn hafði áður heyrt minnst á, Baikal Finance Group, sem er skráð með höfuðstöðvar í húsnæði úti á landi sem hýsir farsímasölu og matvöruverslun. Olíumarkaðurinn hefur beinlínis iðað af kjaftasögum í dag enda skipta þessi kaup miklu máli. Yukos er með um tuttugu prósent markaðshlutdeild á rússneska olíumarkaðinum og framleiðir meiri olíu en olíuríkið Qatar. Flestir hallast að því að rússnesk stjórnvöld séu að einhverju leyti á bak við þetta tilboð og tilgangurinn sé að sniðganga dómsúrskurð sem tímabundið hamlaði því að hægt væri að nota erlent fé til að fjármagna kaupin. Það vita flestir að Pútín gengur með þann draum að búa til eitt risastórt ríkisrekið orkufyrirtæki með því að skella Gazprom og Yukos saman í eina sæng. Sérfræðingar segja að kaupin séu hluti af áformum ríkisstjórnarinnar um að ná fyrirtækinu undir Gazprom. Annar möguleiki sé svo að fyrirtækið verði brotið upp, en hvað sem öðru líði muni Baikal ekki geta staðið undir kaupunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira