Þjóðarsorg lýst yfir í Tyrklandi Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 29. júní 2016 19:00 Fólk í Tyrklandi minnist fórnarlamba árásarinnar. Vísir/EPA
Að minnsta kosti 41 lést og 239 særðust í hryðjuverkaárás sem gerð var á Atatürk-flugvelli í Istanbúl í gærkvöld. Tyrknesk stjórnvöld telja fullvíst að vígamenn Íslamska ríkisins hafi borið ábyrgð á árásinni. Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í landinu. Flugvöllurinn er sá stærsti og fjölsóttasti í Tyrklandi en þrír hryðjuverkamenn komu þangað í leigubíl í gærkvöld, gerðu árás í brottfararsal flugvallarins og skutu úr vélbyssum á nærstadda. Þegar lögreglumenn komu á svæðið sprengdu mennirnir sig í loft upp. Enginn hefur lýst voðaverkunum á hendur sér en forsætisráðherra Tyrkklands, Binali Yildrim, segir að fyrstu vísbendingar bendi til þess að samtökin sem kenni sig við Íslamskt ríki standi að baki árásunum. Langflestir þeirra sem létust í árásinni í gær voru Tyrkir en á meðal hinna látnu eru einnig þrettán erlendir ríkisborgarar. Óttast er að tala látinna fari hækkandi en yfir hundrað þeirra rúmlega 230 sem slösuðust hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsum. Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti lýsti yfir þjóðarsorg í landinu og segir að hryðjuverkaárásin eigi að marka þáttaskil í hinni alþjóðlegu baráttu gegn herskáum uppreisnarhópum. Þá kallaði hann eftir sameiginlegu átaki þjóða gegn hryðjuverkasamtökum. Bandarískir og þýskir ráðamenn hafa fordæmt árásina lýst yfir stuðningi við Tyrki. Þá bað Frans Páfi fyrir tyrknesku þjóðinni, fórnarlömbunum og fjölskyldum þeirra í dag. Flugvellinum var lokað í nokkra klukkutíma eftir árásina en hann hefur nú verið opnaður aftur. Öryggisgæsla á vellinum hefur þó verið efld til muna.
Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira