Húðflúrveisla í sjöunda sinn 4. júní 2012 13:00 Össur segir vera mikla breidd í flúrurunum á hátíðinni í ár og að í boði verði allar gerðir af húðflúrum sem fólk getur ímyndað sér. „
Það verður hægt að fá allar mögulegar gerðir af flúrum á hátíðinni. Ef það á að líkja þessu við fatabúð væri um að ræða búð með öllum gerðum af fötum sem hægt er að ímynda sér,“ segir Össur Hafþórsson, annar eigandi Reyjavík Ink og skipuleggjandi The Icelandic Tattoo Convention sem haldin verður á Bar 11 um næstu helgi. Þetta er í sjöunda árið sem Össur og kona hans Linda Mjöll Þorsteinsdóttir setja upp hátíðina og verður hún að sögn Össurar vinsælli með hverju árinu. „Þetta er búið að þróast mikið í gegnum árin og nú er til dæmis farið að koma sífellt meira af erlendum ferðamönnum til landsins til að mæta á hátíðina,“ segir hann. Mikil breidd af flúrurum verður á hátíðinni og koma þeir víða frá. „Hér verða að sjálfsögðu íslenskir flúrarar en líka frá Þýskalandi, Danmörku, Bandaríkjunum og Ítalíu svo eitthvað sé nefnt,“ segir Össur. Hver sem er getur fengið sér flúr á hátíðinni og fara tímapantanir fram á staðnum. „Þetta er bara stærsta tattústofa landsins með flúrara á heimsmælikvarða,“ bætir Össur við. Hátíðin hefst á fimmtudaginn og stendur út laugardag og verður sem áður segir haldin á Bar 11 og í tjaldi sem reist verður á bílastæðinu fyrir aftan hann. Hún hefst klukkan 12 á hádegi alla dagana og stendur fram eftir kvöldi. Þar á eftir verða svo tónleikar öll kvöld þar sem meðal annars stíga á svið hljómsveitirnar Sykur og Sólstafir. Auk þess verður boðið upp á glæsilega bílasýningu í kjallara bílastæðahússins á Hverfisgötu á laugardaginn. -trs
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Megas er látinn Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Uggvænlegar kynjaverur taka yfir garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Sjá meira