Sýslumönnum mun fækka um þrettán Snærós Sindradóttir skrifar 16. maí 2014 08:00 Skýringarmynd af hinu nýja fyrirkomulagi sýslumanns- og lögregluembætta Snærós
Alþingi hefur samþykkt að fækka sýslumannsembættum úr 22 í níu og fækka lögregluembættum úr fimmtán í níu. Brugðið verður frá því að sýslumannsembætti sjái líka um yfirstjórn lögreglu svo ljóst er að stofnuð verða sjö sjálfstæð lögregluembætti við breytinguna. Breytingin á að ganga í gegn þann fyrsta janúar á næsta ári. Starfsstöðvum sýslumanna og lögreglu verður þó ekki lokað og stefnt er að því að engum verði sagt upp. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segir að þverpólitísk sátt ríki um breytinguna. „Þetta eru breytingar sem hafa verið í undirbúningi í langan tíma, jafnvel áratugi. Menn hafa verið að reyna að finna framtíðarfyrirkomulag hvað varðar þessar mikilvægu stjórnsýslustofnanir á hverju svæði. Ég er mjög stolt af því að þingið hafi nú loks náð saman um þessa leið sem ég held að sé mjög góð. Þetta er auðvitað mikil fækkun en um leið gefur þetta okkur tækifæri til að efla þessi embætti til að taka við auknum verkefnum.“ Eins og áður sagði er stefnt að því að enginn missi vinnuna vegna fækkunarinnar. „Stöður allra lögreglustjóra og sýslumanna verða lausar og svo verða stöðurnar auglýstar. Þessir aðilar hafa svo forgang í ráðningarferlinu,“ segir Hanna Birna.Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra er bæði ánægð og stolt af því að breytingarnar séu í höfn. Fréttablaðið/Stefán KarlssonVegna fækkunarinnar munu ekki allir sem gegna hátt settum embættum fá sína stöðu aftur. „Þeim verða þó boðin sambærileg kjör innan viðkomandi embætta eða stofnana ráðuneytisins.“ Hún bætir við að ekki sé gert ráð fyrir að þessi umfangsmikla breyting kosti ríkið stórfé. „Við teljum okkur geta rekið þetta á sama fjármagni og verið hefur. Þetta eru ekki viðbrögð við niðurskurði á síðustu árum heldur er um að ræða sparnað til lengri tíma. Eini kostnaðurinn sem gæti orðið er ef við þurfum að efla upplýsingakerfi sýslumannanna. Það er mat sem við þurfum að fara í í sumar og ég mun leggja fram tillögu samhliða fjárlagagerð ef breytingin kallar á einhverjar slíkar tilhliðranir.“ Markmið breytingarinnar er meðal annars að efla lögregluembættin og fjölga verkefnum hjá sýslumannsembættunum á móti. „Þetta gefur bæði lögreglustjórum og sýslumönnum tækifæri til aukinnar faglegrar þróunar og uppbyggingar sem skiptir miklu máli fyrir þessi svæði,“ segir Hanna Birna. Alþingi samþykkti frumvarp innanríkisráðuneytisins um áramótin þar sem flutt voru verkefni úr ráðuneytinu til sýslumannsembættanna. Verkefnin voru meðal annars í tengslum við útlendingalöggjöf og í tengslum við verkefni er lúta að löginnheimtum og ættleiðingarmálum og margt fleira. „Með þessu má ná fram hagræðingu í allri stjórnsýslunni. Þetta er rosaleg breyting og stór og mikil aðgerð. Þetta fækkar mörgum stofnunum á einu bretti. Það hefði ekki gerst nema af því það skapaðist um þetta þverpólitísk sátt,“ segir hún.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Erlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Heimir Hannesson er látinn Innlent Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Erlent Fleiri fréttir Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Sjá meira