Vilja sýna ferðamönnum næturlífið 10. maí 2012 10:00 Darri MacMahon og Hlynur Friðfinnsson hafa stofnað fyrirtækið Reykjavík by Night sem sérhæfir sig í að lóðsa ferðamenn um næturlíf miðborgarinnar. Fréttablaðið/Stefán „
Við höfum tekið eftir aukinni eftirspurn eftir þjónustu á borð við þessa frá útlendingum niðri í bæ,“ segir Darri MacMahon, annar eigandi hins nýstofnaða fyrirtækis Reykjavík by Night. Fyrirtækið sérhæfir sig í að lóðsa ferðamenn um hið margrómaða næturlíf Reykjavíkurborgar. Darri og félagi hans, Hlynur Friðfinnsson, stofnuðu fyrirtækið fyrir stuttu og þekkja, að eigin sögn, næturlífið eins og handarbakið á sér. „Við höfðum verið að spá í þessu í langan tíma og nú þegar ferðamannaiðnaðurinn er í mikilli sókn fannst okkur ekki annað hægt en að kýla á þetta,“ segir Darri sem er að útskrifast sem íþróttafræðingur en Hlynur vinnur hjá Ölgerðinni. Reykjavík by Night er þriðja fyrirtækið sem hefur verið stofnað í kringum næturlífið í Reykjavík að undanförnu enda hefur skemmtanamenning landans ákveðið aðdráttarafl á ferðamenn sem sækja landið heim. „Það er í raun ótrúlegt að það séu ekki fleiri svona fyrirtæki á Íslandi enda er næturlífið frægt um allan heim. Við höfum báðir verið að vinna og stundað skemmtistaðina í nokkur ár og tekið eftir útlendingum á ráfi um bæinn án þess að vita hvert er best að fara,“ segir Darri. Hin fyrirtækin sem veita sömu þjónustu eru Reykjavík Rocks og Nightlife Friend. Auk Darra og Hlyns eru sex leiðsögumenn starfandi hjá Reykjavik by Night sem einnig taka að sér útbúa dagsferðir. „Ég fékk pabba minn, Neil McMahon, til að vera með okkur en hann er Íri sem hefur búið hér í þrjá áratugi og ætlar að sjá um þá hópa sem vilja til dæmis fara út að borða og fræðast um íslenska menningu án þess að fara á djammið. Við ættum að geta komið til móts við fjölbreyttan hóp viðskiptavina.“ Hægt er að fræðast um fyrirtækið á vefsíðunni Rvkbynight.is. - áp
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Sjá meira