60 ár frá loftárásinni á Dresden 13. febrúar 2005 00:01
Sextíu ár eru í dag liðin frá loftárásum bandamanna á borgina Dresden í Þýskalandi. Margir sagnfræðingar segja að þessi árás hafi verið hreinn stríðsglæpur sem kostaði hundruð þúsunda óbreyttra borgara lífið. Loftárásirnar á Dresden, sem hófust 13. febrúar árið 1945, stóðu í tvo daga. Meðal annars var varpað á hana þúsundum tonna af eldsprengjum. Borgin brann svo í sjö daga og átta nætur. Hitinn í borginni var um 1800 gráður á selsíus. Eldurinn saug í sig allt súrefni í loftinu og úr því varð eldstormur sem brenndi nánast alla miðborgina til kaldra kola. Margir hafa sagt að þessi árás hafi verið hreinan stríðsglæpur því hernaðarlegt mikilvægi Dresden hafi verið hverfandi. Þar voru engar hersveitir heldur aðeins íbúar borgarinnar og tugþúsundir varnarlausra flóttamanna. Nýnasistar gengu um götur Dresden í dag með spjöld þar sem árásirnar voru kallaðar þjóðarmorð. En það þarf ekki nasista til að halda þessu fram. Margir vestrænir sagnfræðingar eru sömu skoðunar. Hart er deilt um hversu margir létu lífið. Tala fallinna hefur verið að lækka undanfarin ár,og er nú komin niður í 35 þúsund. Þetta segja sagnfræðingarnir að sé fáránleg tala. Þeir telja að þeir sem fórust hafi verið einhvers staðar á bilinu 135 þúsund til 200 þúsund. Og hærri tölur hafa verið nefndar. Dresden eftir loftárásina árið 1945.MYND/AP
Erlent Fréttir Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Innlent Fleiri fréttir Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Sjá meira