Erlent

Segir tilraunir CIA á „Whitey“ Bulger vekja spurningar um sakhæfi hans

Samúel Karl Ólason skrifar
Janet Uhlar og James Bulger skrifuðust á um tíma og sendi hann henni rúmlega 70 bréf.
Janet Uhlar og James Bulger skrifuðust á um tíma og sendi hann henni rúmlega 70 bréf. AP/David Goldman

Einn af kviðdómendunum sem dæmdu glæpamanninn James „Whitey“ Bulger í fangelsi árið 2013, sér eftir því að hafa gert það. Hún og Bulger skrifuðust á á meðan hann var í fangelsi og sagði hann Leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA, hafa gert tilraunir á sér með LSD þegar hann var í fangelsi á árum áður. Í heildina skrifaði Bulger rúmlega 70 bréf til Janet Uhlar og sagði henni sögu sína.

Í bréfum sínum til Uhlar segir Bulger að CIA hafi minnst 50 sinnum gefið honum LSD þegar hann var í fangelsi í fyrsta sinn á sjötta áratug síðustu aldar. Lögmenn hans vöktu þó aldrei athygli á því þegar málaferlin gegn honum stóðu yfir.

Þessar tilraunir CIA voru framkvæmdar af manni sem hét Sidney Gottlieb og gengu þær út á að finna leiðir til að heilaþvo fólk. Gottlieb fékk fjölda lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna til að gefa föngum, fíklum og öðrum sem þóttu ólíkleglegir til að kvarta, stóra skammta af LSD.

Bulger og samfangar hans fengu samkvæmt AP fréttaveitunni tilboð um að taka þátt í tilrauninni í skiptum fyrir styttan fangelsisdóm. Var þeim sagt að markmið tilraunarinnar væri að lækna geðklofa.

„Hefði ég vitað þetta, hefði ég hefði ég pottþétt setið á mér varðandi morðákærurnar,“ sagði Uhlar við blaðamenn AP. Hún sagði Bulger ekki hafa framið morð fyrir þessa tilraun og mögulega hafi hún haft áhrif á heila hans.

„Hvernig er hægt að segja að hann sé í raun sekur?“

Uhlar sagði þó að hún hefði án efa sakfellt Bulger vegna fjölda annarra ákæra sem sneru að áratugalöngum glæpaferli hans.

Frá handtöku Bulger árið 2011.Vísir/Getty

Bulger var dæmdur fyrir skipulagða glæpastarfsemi og aðkomu að ellefu morðum. Hann og glæpagengi hans stjórnuðu undirheimum Boston um árabil og komu að morðum, fjárkúgun og fíkniefnasölu. Það gerðu þeir með aðstoð spilltra starfsmanna Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI.

Hann komst á snoðir um að til stæði að handtaka hann og flúði. Bulger var svo eftirlýstur í sextán ár áður en hann var gómaður.

Að endingu var það hin íslenska Anna Björnsdóttir sem kom FBI á sporið og gat bent á verustað glæpamannsins.

Sjá einnig: Nágranninn hættulegasti glæpamaður Bandaríkjanna

Árið 2018 var Bulger barinn til dauða af öðrum föngum í Bruceton Mills alríkisfangelsinu í Vestur Virginíu. Hann var 89 ára gamall.

Bulger sagðist ekki hafa geta sofið í meira en nokkra klukkutíma í senn um árabil.AP/David Goldman

Uhlar segist hafa sent bréf til Bulger vegna áhyggja sem hún hafði af því að flestir þeir sem báru vitni gegn honum voru fyrrverandi samverkamenn hans í undirheimum Boston og fengu margir þeirra styttingu dóma fyrir vitnisburðinn.

Hann svaraði henni og þau skrifuðust á í þó nokkurn tíma auk þess sem Uhlan heimsótti hann þrisvar sinnum.

Hún tók fljótt eftir því að hann tímasetti bréf sín iðulega á þann veg að hann skrifaði þau um miðjar nætur og þegar hún spurði af hverju, sagði hann það vera vegna ofsjóna.

Bulger sagðist ekki hafa geta sofið í meira en nokkra klukkutíma í senn um árabil. Það hafi byrjaði þegar hann var í fangelsi í Atlanta árið 1957 og tekið þátt í tilraun CIA á LSD. Síðan þá hafi hann þjáðst af ofskynjunum og martröðum.

Hann rifjaði einnig upp að umsjónarmaður tilraunarinnar í fangelsinu í Atlanta hafi spurt hann sérstaklega hvort hann myndi myrða einhvern, eftir að honum hafði verið gefið LSD.

Uhlan hefur varið miklum tíma í að rannsaka tilraunirnar gömlu sem gengu undir nafninu MK-ULTRA. Á einum tímapunkti las hún um fund leyniþjónustumálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings frá 1977. Þá viðurkenndi Stansfield Turnar, yfirmaður CIA, að stofnunin hafi verið að leita að lyfi sem gæti leitt til þess að aðili myrti annan aðila.

Uhlan segir það opna á spurningar um það hvort Bulger beri í raun ábyrgð á þeim morðum sem hann framdi.

Hún hefur skrifað um réttarhöldin gegn Bulger og heldur sömuleiðis fyrirlestra um þau. Uhlan viðurkennir að henni hafi byrjað að þykja vænt um Bulger í gegnum samskipti þeirra, jafnvel þó hann hafi varða hana við því að hann væri glæpamaður og góður í því að spila með fólk.

Þegar Uhlan er spurð hvort Bulger hafi spilað með hana, segist hún oft velta því fyrir sér.


Tengdar fréttir

Birting á nafni Önnu sætir harðri gagnrýni

Anna Björnsdóttir, fyrrverandi fegurðardrottning og leikkona, getur verið í hættu stödd eftir að bandaríska dagblaðið Boston Globe skýrði frá því að það hefði verið hún sem bar kennsl á hinn eftirlýsta glæpamann James "Whitey“ Bulger.

Unnusta Bulgers í 8 ára fangelsi

Cathereine Greig, unnusta James Whitey Bulgers, var dæmd í átta ára fangelsi í kvöld fyrir að aðstoða Bulger við að flýja réttvísina.

Fríða kom upp um „dýrið“

"Það er ótrúlegt að það hafi þurft fegurðardrottningu frá Íslandi til þess að hafa uppi á einum hættulegasta glæpamanni Bandaríkjanna," segir rannsóknarblaðamaður Boston Globe um mál Whitey Bulger sem var handtekinn eftir ábendingu frá Önnu Björnsdóttur.

Mafíuforinginn „Whitey“ Bulger fannst látinn

James Whitey Bulger var handtekinn árið 2011 eftir ábendingu frá íslenskri konu sem bjó við hliðina á honum. Hann hafði verið á flótta undan yfirvöldum í sextán ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×