Innlent

Fleiri nýnemar í kennaranámi norðan heiða

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Háskólinn á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri. Fréttablaðið/Pjetur
Aldrei hafa verið fleiri nýnemar í kennaradeild Háskólans á Akureyri frá því námið varð fimm ára árið 2009. Í haust munu nærri sextíu manns hefja grunnnám í kennarafræðum og er það fjórðungs fjölgun frá síðasta ári.

Í tilkynningu frá Háskólanum á Akureyri segir að fjölgunina megi fyrst og fremst rekja til þess að í fyrsta sinn sé hægt að velja íþróttakjörsvið sem jafnframt er hluti af almennu kennaranámi. 21 nýnemi hefur nám á íþróttakjörsviði í haust. Þar af eru þrettán konur og átta karlar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×