Loka annarri borg í Kína Samúel Karl Ólason skrifar 23. janúar 2020 11:01 Öryggisvörður í lestarstöð í Wuhan, mælir hitastig konu. AP/Xinhua
Yfirvöld Kína hafa tilkynnt að annarri borg, Huanggang, sem liggur nærri Wuhan, hafi verið lokað vegna Wuhan-veirunnar svokölluðu. Rúmlega sjö milljónir manna búa í borginni Huanggang. Minnst sautján eru dánir og rúmlega 600 sýktir af veirunni en vegna ótta við frekari smit á stærstu ferðahelgi Kína hefur Wuhan svo til gott sem verið lokað og gripið hefur verið til svipaðra en umfangsminni aðgerða í Huanggang. Samgöngur hafa verið felldar niður og vegum úr Wuhan hefur verið lokað. Íbúar þar hafa slegist um matvörur og aðrar nauðsynjar í verslunum. Kvikmyndahúsum, kaffihúsum og öðrum samkomustöðum verður lokað í Huanggang og hafa borgarar verið beðnir um að yfirgefa borgina ekki. Þá verður almenningssamgöngum einnig lokað. Búið er að gefa út upplýsingar um þá sautján sem hafa dáið hingað til. Að mestu er um eldri menn að ræða með aðra undirliggjandi heilsukvilla. Yngsta fórnarlambið er 48 ára gamall og það elsta 89 ára. Læknir í Wuhan sem ræddi við BBC segir útbreiðslu veirunnar hafa aukist hratt. Þúsundir íbúa hafi leitað á sjúkrahús og þurfi að bíða klukkustundum saman eftir læknisaðstoð. Margir séu mjög hræddir.
Kína Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira