Innlent

„Við verðum bara að vinna úr því sem við höfum“

Sylvía Hall skrifar
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ljóst að margir sem starfa í heilbrigðisþjónustu og telja sig útsetta fyrir kórónuveirusmiti munu þurfa að bíða í einhvern tíma eftir bóluefni þar sem þeir eru ekki fremstir í forgangsröðuninni. Sjúkraflutningamenn hafa gagnrýnt mjög að vera í fjórða forgangshópi samkvæmt reglugerð á meðan annað heilbrigðisstarfsfólk er í fyrstu hópum.

Vísir greindi frá því í gær að kurr væri í félagsmönnum Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna vegna forgangsröðunar. Í „fullkomnum heimi“ ættu þeir að vera í fyrsta eða öðrum forgangshópi að mati formannsins.

Þórólfur sagði í samtali við fréttastofu í dag að forgangsröðunin tæki mið af fyrirliggjandi reglugerð, og við gerð hennar hafi verið metið hvaða hópar þyrftu fyrst að fá bólusetningu. Þeir heilbrigðisstarfsmenn sem störfuðu mest með sjúklingum væru hvað útsettir og því væru þeir, ásamt öldruðum, í fyrsta forgangshópi.

„Við settum í forgang heilbrigðisstarfsmenn sem eru hvað mest útsettir fyrir veirunni og þannig líklegastir til að sýkjast. Það eru þeir sem eru yfir sjúklingum, það þarf að soga, það getur komið mikið úðasmit frá þessum einstaklingum. Þess vegna eru þeir í forgangi. Svo náttúrulega aldraðir, þar sem dánartalan er hæst. Þetta eru þeir hópar, sérstaklega aldraðir, sem við viljum einbeita okkur að núna til þess að forða frá sýkingunni.“

Aðrir myndu færast aftar 

Bólusetningar með bóluefni lyfjaframleiðandans Pfizer hófust á Íslandi í gær með fyrstu skömmtunum sem komu hingað til lands. Starfsmenn á gjörgæsludeild og bráðamóttöku fengu fyrstu sprauturnar og því næst var hafist handa við að bólusetja heimilismenn á hjúkrunarheimilum, auk annarra heilbrigðisstarfsmanna í framlínu.

Með þessari fyrstu sendingu komu tíu þúsund skammtar sem duga til þess að bólusetja fimm þúsund manns.

Þórólfur segir ljóst að á meðan bóluefni er af skornum skammti mun koma upp ákveðin tregða í hópum sem langar í bóluefnið. Það sé þó jákvætt að fólk sé jafn tilbúið að láta bólusetja sig og raun ber vitni.

„Það eru margir sem vilja vera framarlega og fremst í röðinni en það geta ekki allir verið fremstir. Ef einhver hópur fer fram fyrir þá eru aðrir sem fara aftur og fá ekki bóluefni. Það eru margir sem eru óánægðir með að vera ekki framarlega en það sýnir bara áhugann á bólusetningunni,“ segir Þórólfur.

„Á meðan við fáum ekki meira bóluefni þá verður svona kraumandi óánægja að fá ekki bóluefni, en það er lítið við því að gera. Við verðum bara að vinna úr því sem við höfum.“


Tengdar fréttir

Sprautan breytir litlu fyrst um sinn á heimili þess fyrsta

Bólusetning 20 heimilismanna á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð fyrir kórónuveirunni á morgun mun breyta litlu fyrir starfið fyrst um sinn, að sögn forstöðumanns. Allir séu þó mjög spenntir fyrir bóluefninu, þar á meðal Þorleifur Hauksson, íbúi Seljahlíðar og sá fyrsti utan heilbrigðisstéttar sem bólusettur verður fyrir veirunni á Íslandi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×