Fótbolti

Tryggvi Hrafn á skotskónum í jafntefli

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Tryggvi Hrafn í leik með ÍA.
Tryggvi Hrafn í leik með ÍA. vísir/bára

Íslenski knattspyrnumaðurinn Tryggvi Hrafn Haraldsson var í byrjunarliði Lilleström sem fékk Aasane í heimsókn í norsku B-deildinni í fótbolta í dag.

Skagamaðurinn marksækni kom Lilleström yfir snemma leiks.

Lilleström hafði forystu allt þar til á 86.mínútu þegar gestirnir jöfnuðu metin. Tryggva var skipt af velli skömmu síðar en ekki voru fleiri mörk skoruð í leiknum. Lokatölur 1-1.

Lilleström í 2.sæti deildarinnar með fjórum stigum minna en topplið Tromsö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×