Fótbolti

Landsliðsstrákarnir þurfa ekki að fara í sóttkví við komuna til Þýskalands

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslensku strákarnir fagna marki í undanúrslitaleiknum á móti Rúmeníu sem Ísland vann 2-1.
Íslensku strákarnir fagna marki í undanúrslitaleiknum á móti Rúmeníu sem Ísland vann 2-1. Vísir/Vilhelm

Íslensku landsliðsmennirnir þurfa ekki að eyða neinum tíma í sóttkví þegar þeir koma til móts við íslenska landsliðið eftir helgi.

Íslenska karlalandsliðið mun hittast í Þýskalandi og setja upp æfingabúðir í Augsburg í Þýskalandi. Liðið kemur saman á mánudaginn og leikurinn mikilvægi við Ungverja er síðan á fimmtudaginn.

Sigurvegarinn úr leik Íslands og Ungverjalands mun tryggja sér sæti á EM næsta sumar.

Íslenski hópurinn hefur ekki mikinn tíma saman en mun æfa í Augsburg í tvo daga og flytja sig síðan yfir til Ungverjalands daginn fyrir leik.

Freyr Alexandersson, aðstoðarþjálfari liðsins, var spurður út í hvernig sóttvarnarmál leikmanna verða við komuna til Þýskalands.

Íslensku strákarnir koma til Þýskalands alls staðar af í Evrópu og þar er staða mála misjöfn í baráttunni við heimsfaraldurinn. Það  mun þó ekki breyta neinu hvaða strákarnir koma til móts við liðið.

Freyr segir að samkvæmt reglum í Þýskalandi þá geta leikmenn komist inn í landið með því að framsýna nýju kórónuveiruprófi. Sé prófið innan við 48 tíma gamalt og löggilt þá geta strákarnir hafði strax æfingar með íslenska liðinu.

Íslensku landsliðsstrákarnir geta því byrjað strax að æfa um leið og þeir mæta á svæðið sem skiptir íslenska liðið miklu máli í undirbúningi sínum fyrir Ungverjaleik.

Leikur Ungverjalands og Íslands verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 19.45 en upphitun hefst klukkan 18.45. Áskrift er hægt að kaupa hér en einnig verður í boði að kaupa stakan viðburð á myndlyklum Vodafone og Símans á kr. 990, sem og í vefsjónvarpi Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×