Albert ánægður eftir fimm marka vikuna en vill meira Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. nóvember 2020 10:00 Enginn hefur skorað fleiri mörk fyrir AZ Alkmaar á tímabilinu en Albert Guðmundsson, eða sjö talsins. getty/JAN DEN BREEJEN
Albert Guðmundsson hefur flogið hátt með liði sínu, AZ Alkmaar, að undanförnu. Hann skoraði tvívegis í 3-0 sigri liðsins á RKC Waalwijk í hollensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Þetta var fyrsti deildarsigur liðsins á tímabilinu. „Þetta var kærkominn sigur í deildinni. Við vorum búnir að gera fimm jafntefli og það var mikilvægt að ná loksins þremur stigum. En það var enginn efi í okkar herbúðum. Við vorum búnir að gera vel í Evrópudeildinni og spila vel í deildarleikjunum þótt úrslitin hafi ekki fylgt með,“ sagði Albert í samtali við Vísi. Vikan 25. október til 1. nóvember 2020 var sérstaklega góð fyrir Albert. Hann byrjaði á því að skora í 2-2 jafntefli við Den Haag í hollensku deildinni um þarsíðustu helgi, skoraði síðan tvö mörk í 4-1 sigri á Rijeka í Evrópudeildinni síðastliðinn fimmtudaginn og aftur tvennu í sigrinum á Waalwijk á sunnudaginn. Fimm mörk í þremur leikjum en fyrir þessa hrinu hafði Albert ekki verið í byrjunarliði AZ í mánuð. „Það hefur ekkert mikið breyst. Ég hef fengið nokkra leiki í röð sem hefur hjálpað mér. Ég tel líka að síðasti landsleikur [gegn Belgum] hafi hjálpað. Í síðustu þremur leikjum hef ég spilað frammi sem ég er frábrugðið frá því sem hefur verið hjá AZ þar sem ég hef aðallega verið kantinum,“ sagði Albert. „Annars er allt eins og maður leggur alltaf jafn mikið á sig. Stundum dettur þetta fyrir mann og stundum ekki.“ Belgaleikurinn hjálpaði Albert var í byrjunarliði Íslands gegn Belgíu í Þjóðadeildinni í síðasta mánuði og fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína í þeim leik. „Ég spilaði rúmar 80 mínútur og það var gott fyrir mig að fá leik og halda mér í góðu standi. Það er alveg hugsað um að maður sé í góðu standi hérna en það er allt öðruvísi að vera í leikæfingu en bara æfingaryþma,“ sagði Albert. Albert með boltann í leik Íslands og Belgíu.vísir/vilhelm Hann hefur skorað sjö mörk í átta leikjum í vetur og er langmarkahæstur í liði AZ á tímabilinu. „Ég er alveg sáttur með þetta en stefni á meira og vonandi held ég mínu striki og tek þetta með mér inn í næsta landsleikjahlé,“ sagði Albert. Keppni hætt þegar hann kom til baka Hann fótbrotnaði í leik gegn Heracles fyrir rúmu ári og við tók löng og ströng endurhæfing. „Hún var erfið og löng og það var svekkjandi að þegar ég kom til baka var keppni í hollensku deildinni hætt. Það var óheppileg tímasetning en gerði mig enn hungraðari í að vera klár þegar deildin byrjaði í vetur. Mér finnst ég vera í helvíti góðu standi núna,“ sagði Albert sem náði aðeins að spila átta leiki á síðasta tímabili. Albert hefur leikið í Hollandi síðan 2013, fyrst með Heerenveen, svo PSV Eindhoven og loks með AZ Alkmaar.getty/JAN DEN BREEJEN Þegar keppni í Hollandi var blásin af síðasta vor var AZ jafnt Ajax að stigum á toppi hollensku úrvalsdeildarinnar. Eftir sex umferðir á þessu tímabili er AZ í 9. sæti með átta stig, tíu stigum á toppnum. „Markmiðið fyrir tímabilið var að berjast við Ajax og PSV Eindhoven um titilinn. Þetta er strembið núna en mótið er langt og við erum ekki búnir að missa trúna þótt við séum búnir að gera okkur erfitt fyrir,“ sagði Albert. Þarf að taka ábyrgð á fleirum en sjálfum sér Hann hefur ekki bara notið velgengni inni á vellinum að undanförnu en ekki er langt síðan hann varð faðir í fyrsta sinn. „Maður þarf að taka aðeins meiri ábyrgð en bara á sjálfum sér. Þetta var mikið meira að hugsa um rassgatið á sjálfum sér áður en nýtt líf kom í heiminn sem þarf að hugsa um allan sólarhringinn. Lífið hefur samt ekki mikið breyst fyrir utan að það bættist ein önnur manneskja við,“ sagði Albert að endingu.
Hollenski boltinn Tengdar fréttir Gjörsamlega trompaðist eftir að Albert skoraði hjá honum í annað skiptið Hér má sjá mörkin tvö sem Albert Guðmundssn skoraði og vítið sem hann fiskaði í sigri AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. 2. nóvember 2020 12:01 Vika sem fær mögulega heilan kafla í ævisögu Alberts Albert Guðmundsson hefur heldur betur verið á skotskónum í síðustu leikjum AZ og náði að skora fimm mörk frá sunnudegi til sunnudags. 2. nóvember 2020 09:00 Albert skoraði tvö annan leikinn í röð | Bröndby tapar og tapar Albert Guðmundsson skoraði tvennu annan leikinn í röð er AZ Alkmaar vann 3-0 sigur á RKV Waalwijk í hollensku úrvalsdeildinni í kvöld. Þá lék Hjörtur Hermannsson með Bröndby í Danmörku sem tapaði sínum þriðja leik í röð. 1. nóvember 2020 21:31 Albert var hógvær í viðtali eftir tveggja marka leikinn í Evrópudeildinni í gær Íslenski landsliðsframherjinn Albert Guðmundsson þakkaði félögum sínum fyrir góðar stoðsendingar í viðtali eftir flotta frammistöðu sína í gær. 30. október 2020 09:31 Albert fór á kostum í öruggum sigri AZ | Markalaust hjá Sverri gegn gömlu félögunum Albert Guðmundsson skoraði tvívegis fyrir AZ Alkmaar er liðið vann 4-1 sigur í Evrópudeildinni í kvöld. Þá spilaði Sverrir Ingi Ingason allan leikinn er PAOK gerði markalaust jafntefli við fyrrum félaga hans í Granada. 29. október 2020 22:20 Rúnar Alex sá fjórði sem spilar fyrir Arsenal Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er fjórði Íslendingurinn sem leikur fyrir enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal. 29. október 2020 20:51 Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira
Gjörsamlega trompaðist eftir að Albert skoraði hjá honum í annað skiptið Hér má sjá mörkin tvö sem Albert Guðmundssn skoraði og vítið sem hann fiskaði í sigri AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. 2. nóvember 2020 12:01
Vika sem fær mögulega heilan kafla í ævisögu Alberts Albert Guðmundsson hefur heldur betur verið á skotskónum í síðustu leikjum AZ og náði að skora fimm mörk frá sunnudegi til sunnudags. 2. nóvember 2020 09:00
Albert skoraði tvö annan leikinn í röð | Bröndby tapar og tapar Albert Guðmundsson skoraði tvennu annan leikinn í röð er AZ Alkmaar vann 3-0 sigur á RKV Waalwijk í hollensku úrvalsdeildinni í kvöld. Þá lék Hjörtur Hermannsson með Bröndby í Danmörku sem tapaði sínum þriðja leik í röð. 1. nóvember 2020 21:31
Albert var hógvær í viðtali eftir tveggja marka leikinn í Evrópudeildinni í gær Íslenski landsliðsframherjinn Albert Guðmundsson þakkaði félögum sínum fyrir góðar stoðsendingar í viðtali eftir flotta frammistöðu sína í gær. 30. október 2020 09:31
Albert fór á kostum í öruggum sigri AZ | Markalaust hjá Sverri gegn gömlu félögunum Albert Guðmundsson skoraði tvívegis fyrir AZ Alkmaar er liðið vann 4-1 sigur í Evrópudeildinni í kvöld. Þá spilaði Sverrir Ingi Ingason allan leikinn er PAOK gerði markalaust jafntefli við fyrrum félaga hans í Granada. 29. október 2020 22:20
Rúnar Alex sá fjórði sem spilar fyrir Arsenal Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er fjórði Íslendingurinn sem leikur fyrir enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal. 29. október 2020 20:51