Jóhann Berg byrjaði í fyrsta marka­lausa jafn­teflinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson sækir að marki WBA í kvöld.
Jóhann Berg Guðmundsson sækir að marki WBA í kvöld. Andrew Kearns/CameraSport/Getty Images

Jóhann Berg Guðmundsson spilaði í rúman klukkutíma er WBA og Burnley gerðu markalaust jafntefli í næst síðasta leik fimmtu umferðar enska boltans. Þetta var fyrsta markalausa jafntefli tímabilsins.

Leikurinn var alls ekki mikið fyrir augað. Bæði lið vörðust fimlega en illa tókst að skapa sér mörg opin marktækifæri og niðurstaðan varð að endingu, eins og áður segir, markalaust jafntefli.

Jóhann Berg Guðmundsson spilaði í 69 mínútur í byrjunarliðinu sem eru góðar fréttir fyrir hann en hann hefur verið mikið meiddur á árinu.

Þetta var fyrsta stig Burnley í ár en þeir hafa spilað fjóra leiki á meðan WBA er með tvö stig eftir fyrstu fimm leikina.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira