AC Milan með montréttinn í Mílanó eftir sigur á nágrönnunum

Zlatan og félagar fagna marki í dag.
Zlatan og félagar fagna marki í dag. getty/Jonathan Moscrop

AC Milan er á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga eftir sigur á nágrönnum og erkifjendum sínum í Inter.

Zlatan Ibrahimovic kom AC Milan yfir á 13. mínútu þegar hann fylgdi á eftir eigin vítaspyrnu sem hann klúðraði. Aðeins þremur mínútum síðar skoraði hann annað mark sitt í leiknum eftir stoðsendingu frá Rafael Leao. Zlatan ekki lengi að stimpla sig inn aftur eftir að hafa glímt við Kórónuveiruna.

Romelu Lukaku minnkaði muninn fyrir Inter í 1-2 á 29. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og 2-1 sigur rauða liðsins í Mílanó staðreynd. 

AC Milan er eins og áður segir með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir og á toppi deildarinnar. Inter er í 6. sæti með sjö stig eftir fjóra leiki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira