Fótbolti

Sjáðu alla leiki Þjóðadeildarinnar í beinni: Liðin úr úrslitaleik HM

Sindri Sverrisson skrifar
Kylian Mbappé og félagar í franska landsliðinu mæta Króatíu líkt og í úrslitaleik HM 2018.
Kylian Mbappé og félagar í franska landsliðinu mæta Króatíu líkt og í úrslitaleik HM 2018. Getty/Xavier Laine

Alls verða 17 leikir í beinni útsendingu á Vísi í dag í Þjóðadeildinni í fótbolta, þar á meðal viðureign Króatíu og Frakklands sem mættust í úrslitaleik HM 2018. Þrír leikir eru á íþróttarásum Stöðvar 2.

Þó að leikur Íslands og Belgíu standi vitaskuld upp úr þá er fjöldi annarra leikja á dagskrá. Áhugasamir geta meðal annars séð andstæðinga Íslands í úrslitaleiknum um sæti á EM, Ungverja, mæta Rússum.

Ísland og Belgía mætast á Stöð 2 Sport, í opinni dagskrá, og England og Danmörk mætast á Stöð 2 Sport 2. Þá er einnig sýndur stórleikur Ítalíu og Hollands á Stöð 2 Sport 4.

Aðrir leikir verða sýndir beint hér á Vísi. Hægt er að horfa á útsendingar frá þeim leikjum með því að smella á viðeigandi hlekk hér að neðan. Útsendingarnar birtast neðst í textalýsingu hvers leiks, svo að lesendur gætu þurft að skruna niður í gegnum textalýsingu til að finna beina útsendingu.

Flestir leikjanna eru kl. 18.45 en tveir kl.16. Markaþáttur Þjóðadeildarinnar er svo sýndur á Stöð 2 Sport 2 kl. 20.45 í kvöld.

Leikir í beinni í dag:

A-deild

1. riðill:

18.45 Pólland - Bosnía (Vísir)

18.45 Ítalía - Holland (Stöð 2 Sport 4)

2. riðill:

18.45 England - Danmörk (Stöð 2 Sport 2)

18.45 Ísland - Belgía (Stöð 2 Sport)

3. riðill:

18.45 Króatía - Frakkland (Vísir)

18.45 Portúgal - Svíþjóð (Vísir)

B-deild

1. riðill:

18.45 Noregur - N-Írland (Vísir)

18.45 Rúmenía - Austurríki (Vísir)

2. riðill:

18.45 Skotland - Tékkland (Vísir)

18.45 Slóvakía - Ísrael (Vísir)

3. riðill:

18.45 Tyrkland - Serbía (Vísir)

18.45 Rússland - Ungverjaland (Vísir)

4. riðill:

16.00 Finnland 1-0 Írland (Leik lokið)

18.45 Búlgaría - Wales (Vísir)

C-deild

2. riðill:

18.45 N-Makedónía - Georgía (Vísir)

18.45 Eistland - Armenía (Vísir)

3. riðill:

18.45 Moldóva - Slóvenía (Vísir)

18.45 Grikkland - Kósóvó (Vísir)

4. riðill:

16.00 Litháen 0-0 Albanía (Leik lokið)

18.45 Hvíta-Rússland - Kasakstan (Vísir)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×