Stórmeistarajafntefli í París

Rólegt í Frakklandi í kvöld.
Rólegt í Frakklandi í kvöld. vísir/Getty

Ekki var boðið upp á mikið fjör þegar tvö af bestu landsliðum heims leiddu saman hesta sína í riðli 3 í A-deild Þjóðadeildarinnar í París þar sem Heimsmeistarar Frakklands tóku á móti Evrópumeisturum Portúgals.

Helstu ofurstjörnur beggja liða voru með í leiknum en þrátt fyrir það var ekki mikið ris yfir leiknum.

Var ekkert mark skorað og úr varð stórmeistarajafntefli, 0-0.

Bæði lið taplaus eftir þrjá leiki en Portúgal er á toppi riðilsins með betri markatölu en Frakkar og hafa bæði lið 7 stig.

Markalaust jafntefli varð sömuleiðis niðurstaðan í Póllandi þar sem heimamenn tóku á móti Ítölum í riðli 1.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira