Enski boltinn

Thiago er ekki dæmigerður Liverpool-leikmaður sem gerir þetta svo áhugavert

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Thiago reynir hér stungusendingu í leik með Bayern München.
Thiago reynir hér stungusendingu í leik með Bayern München. Getty/TF-Images

Liverpool hefur loksins fengið liðstyrk því félagið er að kaupa Spánverjann Thiago Alcantara frá Bayern München. Liverpool er um leið komið með hljómssveitastjóra inn á miðju liðsins og það gæti haft áhrif á leikstíl liðsins.

Thiago Alcantara gæti nefnilega komið með breytingar á því hvernig Liverpool byggir upp sóknir sínar á þessu tímabili en ensku meistararnir eru að fá til sín leikmann sem stjórnaði spilinu á miðjun besra liðs Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð.

Sky Sports birti pistil eftir Adam Bate þar sem hann skoðar betur áhrifin sem Thiago Alcantara gæti haft á sóknarleik Liverpool. Hér á eftir má sjá brot úr greiningu Bate á komu Thiago Alacantara til Liverpool.

Jamie Redknapp taldi að Thiago Alacantara myndi koma með nýja vídd inn í leik Liverpool og það gerir komu hans svo spennandi fyrir stuðningsmenn félagsins.

Með brasilískar rætur og Barcelona uppeldi

Thiago er spænskur sendingameistari með brasilískar rætur og þá er hann alinn upp hjá Barcelona. Hann er maður sem kann besti við sig að stýra leiknum á miðjunni og líður hvergi betur en að vinna á þröngum svæðum.

Pep Guardiola gaf honum fyrsta tækifærið í atvinnumennskunni og tók hann síðan til Bayern þegar hann fór þangað. Það hafa því allir litið á Thiago Alacantara sem Pep Guardiola leikmann og hann á núna að fara að spila fyrir Jürgen Klopp. Thiago Alcantara er nefnilega ekki dæmigerður Liverpool leikmaður og það gerir komu hans svo áhugaverða að mati Adam Bate.

Tölurnar sýna að Thiago er vanur að vera mikið með boltann en þær sýna líka að hann er frábær sendingamaður. Thiago kláraði 82,6 sendingar að meðaltali á hverjum 90 mínútum í þýsku Bundesligunni á síðustu leiktíð þar sem 90 prósent sendinga hans heppnuðust.

Það skiptir ekki máli hvort hann notar vinstri eða hægri fótinn. Hann er líka duglegur að brjóta upp leikinn með gullsendingum á milli kanta eða fram völlinn.

Í ensku úrvalsdeildinni í fyrra voru það Manchester City mennirnir Rodri og Ilkay Gundogan sem kláruðu flestar sendingar á hverjar 90 mínútur. Næstir á eftir voru Chelsea mennirnir Jorginho og Mateo Kovacic en enginn Liverpool leikmaður var nálægt efstu mönnum.

Ólíkur hinum miðjumönnum Liverpool liðsins

Það segir líka mikið til um leik Liverpool en undir stjórn Júrgen Klopp eru það miðverðirnir sem byrja sóknirnar og boltinn fer út til bakverðina miklu miklu oftar en inn á miðjumennina. Það eru bakverðirnir sem bera boltann upp og koma honum til sóknarlínunnar.

Aðalhlutverk miðjumanna Klopp er að valda svæði, vinna boltann og koma í veg fyrir skyndisóknir mótherjanna. Það er ekki algengt að miðjumenn Liverpool komi boltanum inn í teig heldur reyna þeir miklu frekar að koma boltanum út á vængina.

Adam Bate er ekki á því að leikstíll Liverpool gerbreytist við komu Thiago en Spánverjinn kemur aftur á móti með eitthvað nýtt inn í sóknarleikinn sem ætti ekki síst að hjálpa til þegar liðin leggjast aftarlega á móti Liverpool.

Hann myndi hjálpa Liverpool að hreyfa boltann með þríhyrningssamspili og opna afturliggjandi varnir andstæðinganna.

Kemur með eitthvað nýtt inn í sóknarleik Liverpool

Thiago mun alveg örugglega breyta einhverju. Virgil van Dijk og Joe Gomez gætu leitað meira af honum en bakvörðunum Robertson og Trent Alexander-Arnold. Sadio Mane og Mo Salah gætu jafnvel spilað meira í gegnum hann í stað þess að reyna meira sjálfir.

Thiago er ekki dæmigerður Liverpool leikmaður og það gerir allar vangaveltur um Liverpool liðið með hann innanborðs svo áhugaverðar. Hann kemur með eitthvað nýtt og flugbeitt inn í sóknarleik Liverpool. Það gæti verið slæmar fréttir fyrir öll hin liðin að mati Adam Bate.

Það má sjá allan pistil Adam Bate með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×