Arsenal vann þriðja leikinn í röð

Sindri Sverrisson skrifar
Arsenal-menn fagna marki Alexandre Lacazette í dag.
Arsenal-menn fagna marki Alexandre Lacazette í dag. vísir/getty

Arsenal vann í dag 1-0 sigur gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og hefur þar með unnið þrjá leiki í röð í deildinni.

Það var Alexandre Lacazette sem skoraði sigurmarkið í þessum Lundúnaslag, tíu mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma. Hann skoraði markið af stuttu færi eftir skallasendingu frá Mesut Özil, í kjölfarið á skoti Pierre-Erick Aubameyang sem fór af varnarmanni og upp í loftið.

Arsenal er nú með 40 stig í 9. sæti, aðeins þremur stigum á eftir Wolves sem er í 5. sæti og fimm stigum á eftir Chelsea sem er í 4. sæti en á leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira