Heimsmeistari til liðs við Manchester City Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. ágúst 2020 23:00 Lavelle hefur leikið 45 landsleiki fyrir A-landslið Bandaríkjanna. Howard Smith/Getty Images
Kvennalið Manchester City hefur samið við Rose Lavalle. Hún er þriðji leikmaðurinn sem Man City fær til sín það sem af er sumri. Rose Lavelle kemur frá OL Reign í Bandaríkjunum en þessi 25 ára gamli leikmaður hafði aðeins verið í herbúðum liðsins í nokkra daga. Þar áður lék hún með Washington Spirit en Lavelle ákvað að söðla um og ganga til liðs við Man City þegar tilboð frá enska félaginu barst. „Ég er mjög ánægð með að vera orðin leikmaður Manchester City og ég get ekki beðið eftir að spila með þessum hæfileikaríku leikmönnum. Ég hlakka til að spila á Englandi og taka þátt í Meistaradeild Evrópu,“ sagði Lavelle við undirskriftina. Lavelle skoraði annað marka Bandaríkjanna er liðið lagði Holland af velli 2-0 í úrslitaleik HM sem fram fór á síðasta ári. Alls á hún að baki 45 landsleiki fyrir Bandaríkin. Er hún annar Kaninn sem gengur til liðs við City í sumar en Sam Mewis skrifaði einnig undir á dögunum. Man City endaði í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar sem var blásin af eftir aðeins 15 umferðir vegna kórónufaraldursins. Deildin fer af stað þann 6. september.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Serbía - Ísland | Mæta Jokic í gini úlfsins Körfubolti Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Man. City verður meistari Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Fleiri fréttir Jón Dagur skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Berlínarbúa Crystal Palace - Manchester City | Erfiður leikur fyrir ernina Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Mun sýna leiki þýsku úrvalsdeildarinnar á YouTube-rás sinni Rafael Leão til Galatasaray Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Dregið í Evrópudeild: Orri mætir Palace, Bournemouth og Juventus Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Sjá meira