Lífið

Alda Karen segist þakklát fyrir atriðið í Skaupinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alda Karen er sátt við Skaupið. Hér má sjá Öldu Karen til vinstri og Dóru Jóhanns til hægri.
Alda Karen er sátt við Skaupið. Hér má sjá Öldu Karen til vinstri og Dóru Jóhanns til hægri.

Áramótaskaupið var að sjálfsögðu á sínum stað á gamlárskvöld, enda fastur liður í áramótafögnuði flestra Íslendinga.

Handritshöfundar Skaupsins í ár voru þau Þorsteinn Guðmundsson, Dóra Jóhannsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir, Jakob Birgisson, Sævar Sigurgeirsson, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, Hugleikur Dagsson og Reynir Lyngdal, sem jafnframt leikstýrði í ár. Reynir leikstýrði síðast Skaupinu árið 2006.

Eitt atriði vakti sérstaklega mikla athygli og var þá verið að gera sér mat úr fyrirlestraröð Öldu Karen Hjaltalín. Alda Karen hefur náð töluverðum árangri með sínum fyrirlestrum en þar reynir hún að aðstoða gesti í sal að ná sínum markmiðum. Það vakti sérstaka athygli þegar hún hvatti fólk til að kyssa peninga og í kjölfarið myndi það eignast peninga.

SNL á Íslandi

„Á gamlárskvöld lék unga leikkona mig í árlegum áramótagrínþætti á Íslandi og hef ég fengið fullt af skilaboðum og myndböndum frá vinum og vandamönnum í kjölfarið,“ segir Alda Karen í færslu á Instagram. Hún segist ekki hafa geta horft á Skaupið fyrr en á nýju ári og var nýbúin að sjá þáttinn þegar færslan fór inn.

„Þessi þáttur er rosalega vinsæll á Ísland, svona eins og Saturday Night Live nema bara einu sinni á ári. Það er svo skrýtið að sjá einhvern leika þig í sjónvarpi og ég er enn að ná utan um þetta.  Ég var tekin illa fyrir og ég hló mjög mikið allan tímann. Elskaði þetta.“

Hún segir að leikkonan Dóra Jóhannsdóttir hafi litið alveg eins út og hún.

„Ég er svo þakklát og þetta er mikill heiður fyrir mig. Fólk sem þekkir mig vel veit að ég lifi fyrir góðan húmor og mikinn hlátur. Get ekki ímyndað mér betri byrjun á árinu.“

 
 
 
View this post on Instagram

On New Years Eve a young actress played me in the annual NYE comedy show in Iceland. I wasn’t able to watch the show until today (thank you VPN) but I had gotten a lot of messages/videos from friends and family, since this show is kind of a big deal (think SNL but not live and only once a year). Not a lot of people know this but it’s been my goal since 2016 to get on this show. It is so surreal watching someone play you on TV. YOU. Can you imagine?! I’m still wrapping my head around it. They roasted me good and I laughed so hard the whole time. I loved it. She also looked so much like me! (Swipe right to see my doppelganger), I am so grateful and honored to have been mentioned on this show. People who know me well, know that I live for humor and a good laugh, (especially when I’m the joke lol) so I can’t imagine a better start of the year than to be featured in “Áramótaskaupið”. Want to give a huge shoutout to the writers, director and crew for an amazing show this year and making my 4 year goal finally come true. Thank you, thank you, thank you for showing me what I do matters and for all your support, love, roasts and for always holding me accountable. I am so grateful for you all. All the love, AK.

A post shared by Alda Karen (@aldakarenh) on Jan 5, 2020 at 2:33pm PST

Hér að  neðan má sjá atriðið í heild sinni. 


Tengdar fréttir

Gera grín að peningakossum Öldu Karenar

Fyrirlesarinn Alda Karen Hjaltalín heldur úti nokkuð virkri Facebook og Instagram síðu þar sem hún meðal annars sýnir fylgjendum sínum ákveðna lífslykla eins og hún kallar það sjálf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×