Erlent

Næst­um einn af hverj­um hundr­að Band­a­ríkj­a­mönn­um hefur smit­ast af veir­unn­i

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Þórir Guðmundsson skrifa
Nærri einn af hverjum hundrað Bandaríkjamönnum hefur nú mælst með kórónuveiruna.
Nærri einn af hverjum hundrað Bandaríkjamönnum hefur nú mælst með kórónuveiruna. Getty/ Lev Radin

Næstum einn af hverjum eitt hundrað Bandaríkjamönnum hefur nú mælst með kórónuveiruna og nýsmitum fjölgar dag frá degi. Smitkúrvan, sem hefur verið á niðurleið í mörgum Evrópulöndum, fer hratt upp í Bandaríkjunum.

Tvö lönd skera sig úr þegar kemur að fjölda tilfella Covid-19, Bandaríkin og Brasilía. Í báðum löndum hafa forsetar þeirra talað með ýmsu móti gegn sóttvarnaráðstöfunum. Um helgina setti Trump Bandaríkjaforseti upp grímu í fyrsta sinn opinberlega, þegar hann heimsótti sjúkrahús.

„Ég hef aldrei verið á móti grímum en ég held að þær hafi sína stund og sinn stað,“ sagði Donald Trump um helgina.

Á meðan geysar faraldurinn. Eftir að nýsmitum hafði fækkað smám saman í maí fóru þau aftur á skrið í lok júní og eru nú í hæstu hæðum. Faraldurinn geysar nú af miklum styrk í fylkjum eins og Arizona, Flórída, og Texas - þar sem fylkisstjórar fylgdu ráðleggingum Trumps forseta um að draga úr samkomutakmörkunum og koma fyrirtækjum í gang á ný. Læknar í Texas eru dauðhræddir við þróunina þar.

„Við höfum séð veldisvöxt Covid-tilfella. Spítalinn hefur þurft að fjölga rúmum. Við byrjuðum með 46 rúm, svo fórum við upp í 58 og nú höfum við 88 rúm. Þótt það virðist ekki mikið af rúmum þá er það ekki nóg,“ sagði Dr. Joseph Varon, læknir.

Hér gera læknar örvæntingarfulla tilraun til að bjarga lífi konu, sem er talin hafa smitast af kórónuvírusnum við jarðarför eiginmanns hennar nokkrum vikum áður. Af þeim sem mættu í jarðarförina veiktust tíu. Læknum tókst á endanum ekki að bjarga lífi hennar.

„Sumir hafa væg einkenni, sumir hafa engin einkenni en fyrir þá sem fá einkennin er þetta eins og dauði,“ sagði Latanya Robinson, sjúklingur.

Ekki fer fram hjá neinum að mörg þeirra fylkja þar sem faraldurinn er í hvað mestri sókn eru mikilvæg forsetanum í komandi kosningum í nóvember. Alls hafa 132 þúsund manns látið lífið af völdum kórónuveirunnar í Bandaríkjunum.


Tengdar fréttir

Undirbúa rannsókn á upptökum faraldursins í Kína

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur sent tvo sérfræðinga til Kína til að leggja drög að rannsókn á upptökum heimsfaraldurs nýs afbrigðis kórónuveiru sem hefur orðið meira en hálfri milljón manna að bana. Faraldurinn er enn í vexti víða í Bandaríkjunum, miðpunkti faraldursins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×