Aston Villa heldur í vonina eftir sigur

Ísak Hallmundarson skrifar
Enn er von.
Enn er von. getty/Tim Keeton

Aston Villa sigraði sinn fyrsta leik frá því janúar í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið fékk Crystal Palace í heimsókn í dag.

Mamadou Sakho virtist vera að koma Palace yfir á 7. mínútu en markið var dæmt af með hjálp myndbandsdómgæslu. Boltinn var sagður fara í hönd Sakho og í netið en leit út eins og eðlilegt skallamark.

Egyptinn Trezeguet náði síðan forystunni fyrir Aston Villa rétt undir lok fyrri hálfleiks. Staðan í hálfleik 1-0 Villa í vil.

Trezeguet var svo aftur á ferðinni á 54. mínútu og koma Villa-mönnum í 2-0 og voru það úrslit leiksins. Fyrsti sigur Aston Villa í deildinni síðan 21. janúar.

Eftir leikinn á Villa enn möguleika á að halda sæti sínu í deild þeirra bestu þó vonin sé veik. Liðið er í 18. sæti, fallsæti, fjórum stigum frá öruggu sæti þegar einungis níu stig eru eftir í pottinum. Crystal Palace er um miðja deild með 42 stig og getur ekki fallið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira