„Liverpool hefur drukkið marga bjóra í síðustu viku en voru með ekkert áfengi í blóðinu í gær“ Anton Ingi Leifsson skrifar 3. júlí 2020 09:30 Klopp og Guardiola léttir á hliðarlínunni í gær. vísir/getty
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir að nýkrýndir enskir meistarar í Liverpool hafi drukkið nóg af bjór um síðustu helgi en það hafi ekkert áfengi verið í blóði þeirra í leik liðanna í gær. Manchester City rúllaði yfir Liverpool í leik liðanna á Etihad-leikvanginum í gær en lokatölur urðu 4-0 sigur heimamanna. „Ég held að þeir hafi drukkið marga bjóra í síðustu viku en þeir voru hérna með ekkert í blóðinu og komnir til þess að vinna leikinn,“ sagði Guardiola og hrósaði hann Liverpool. „Ég sá lið með ótrúlega einbeitingu, orku og vilja til þess að vinna leikinn og ég sá það frá fyrstu mínútu að þeir mættu grimmir.“ City getur enn unnið þrennuna í ár. Liðið hefur nú þegar unnið enska deildarbikarinn og á möguleika á að vinna enska bikarinn og Meistaradeildina. Guardiola vonar að sigurinn í gær hjálpi til. „Mögulega mun það hjálpa okkur. Við eigum erfitt tímabil fyrir höndum að ná í bikarana sem við stefnum á og við þurftum að vera hugrakkir til þess að taka ákvarðanir í kvöld [gær] því þeir eru besta pressulið sem ég hef séð á ævinni.“ „Við þurftum að vera vel samtengdir til þess að refsa þeim og það er það sem við gerðum.“ Guardiola says Liverpool must have drunk 'a lot of beers' following Man City 4-0 victory #MCILIVhttps://t.co/uio5mQTGdV— Mirror Football (@MirrorFootball) July 2, 2020
Enski boltinn Mest lesið Lebron talaði hreint út Körfubolti Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Fótbolti Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Enski boltinn Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Handbolti Elvar með sex mörk í toppslagnum Handbolti Olise reyndist hetja Frakka í Belgíu Fótbolti „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Fótbolti Fleiri fréttir Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn Sjá meira