Brentford sigraði toppliðið og á enn góða möguleika á að fara beint upp

Ísak Hallmundarson skrifar
Brentford fagna eftir leik. 
Brentford fagna eftir leik.  getty/Justin Setterfield

Brentford sigraði WBA í ensku B-deildinni í kvöld og færðist nær toppliðunum að stigum. Lokatölur 1-0 á Griffin Park í eina leik dagsins.

Ollie Watkins skoraði eina mark leiksins á 16. mínútu.

W.B.A. eru enn á toppi Championship-deildarinnar á markatölu en Leeds United fylgir fast á hæla þeirra og á nú möguleika á að komast eitt á toppinn með sigri á morgun gegn Fulham. Brentford eru komnir upp í 3. sæti og eru aðeins fimm stigum á eftir toppliðunum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira