Minntust látinnar hetju félagsins í sigri á Leeds

Sindri Sverrisson skrifar
Leikmenn Cardiff fagna marki Junior Hoilett og lyfta treyju Peter Whittingham, fyrrverandi leikmanns liðsins, sem lést af slysförum í mars, aðeins 35 ára að aldri.
Leikmenn Cardiff fagna marki Junior Hoilett og lyfta treyju Peter Whittingham, fyrrverandi leikmanns liðsins, sem lést af slysförum í mars, aðeins 35 ára að aldri. VÍSIR/GETTY

Cardiff kom sér í baráttuna um sæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta þegar liðið vann Leeds 2-0 í dag. Leeds fór þar með niður í 2. sæti B-deildarinnar og hleypti West Brom á toppinn.

West Brom og Leeds eru með 71 stig hvort þegar átta umferðir eru eftir, sjö stigum frá næsta liði sem er Fulham. Liðin í 3.-6. sæti fara í umspil um eitt laust sæti í úrvalsdeildinni og er Cardiff í bullandi baráttu um að komast í umspilið, nú með 57 stig líkt og Preston North End í 6.-7. sæti.

Junior Hoilett kom Cardiff yfir á 36. mínútu í dag og heimamenn nýttu sér svo hálfgert meðvitundarleysi í vörn Leeds þegar Robert Glatzel skoraði með glæsilegu skoti á 72. mínútu.

Leikmenn Cardiff minntust eins af marka- og leikjahæstu leikmönnum félagsins, Peter Whittingham, í leiknum. Whittingham lést í mars, aðeins 35 ára að aldri, eftir að hafa fallið niður stiga á bar. Hann lék í tíu ár hjá Cardiff og var þar meðal annars lengi liðsfélagi Arons Einars Gunnarssonar sem og Heiðars Helgusonar um tíma.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira