Palace með sigur á Bournemouth í lokaleik dagsins

Palace menn hrósuðu sigri í dag. 
Palace menn hrósuðu sigri í dag.  getty/Ian Walton

Bournemouth þurfti á stigum að halda í fallbaráttunni en lágu frekar auðveldlega fyrir Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur leiks urðu 0-2 fyrir Palace-mönnum.

Luka Milivojevic kom Palace yfir eftir 12 mínútna leik og Jordan Ayew tvöfaldaði forskotið á 23. mínútu. 

Bournemouth voru meira með boltann og sköpuðu fleiri færi í seinni hálfleik en tókst ekki að minnka muninn, lokatölur eins og áður kom fram 2-0 sigur Crystal Palace.

Með sigrinum fóru Crystal Palace upp fyrir Arsenal í töflunni og eru komnir upp að hlið Tottenham sem eru í 8. sætinu. Bournemouth situr eftir í fallsæti og var þetta fimmta tap þeirra í síðustu sex deildarleikjum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira