Fótbolti

Kjartan: Réðum illa við boltann á grasinu

Víkingur Goði Sigurðarson skrifar
Kjartan Stefánsson á hliðarlínunni.
Kjartan Stefánsson á hliðarlínunni. vísir/bára

Fylkir vann góðan 3-1 útisigur á KR í Frostaskjólinu, í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. 

„Við fengum draumabyrjun. Við skoruðum á fyrstu mínútu og þetta var bara mjög góð byrjun, ” sagði Kjartan Stefánsson þjálfari Fylkis sáttur um byrjun leiksins en Þórdís Elva Ágústsdóttir kom Fylki yfir á fyrstu mínútu.

Sóknirnar hjá Fylki í leiknum voru mjög ákveðnar fram á við og þær voru ekkert mikið að halda boltanum bara til að halda honum.

„Við ætluðum að sækja á þær með ákveðnum hætti og gerðum það svo sem. Það sem var kannski mesta brasið í þessum leik var að þetta fyrsti leikurinn okkar á grasi. Við erum ekkert á grasi og réðum bara illa við boltann.”

Fylkir spilar vanalega á gervigrasi eins og helmingurinn af liðunum í Pepsi Max deild kvenna. Þetta var fyrsti leikur Fylkis á grasi í sumar og það fór ekki vel í þær.

„Við réðum illa við boltann á grasinu. Mér fannst bæði lið vera svona í sömu stöðu hvað það varðar. Þó að KRingar hafi kannski verið í aðeins skárri stöðu hvað það varðaði.”

Það hægðist dálítið á tempóinu undir lok leiksins og það sást á báðum liðum að það var þreyta. Fylkir náðu þó að nýta sín færi undir lok leiksins.

„Það dróg af báðum liðum. Við vorum að missa einfalda bolta í gegnum okkur og þær líka. Við náðum sem betur fer bara að klára þennan leik.”

Fylkir fær nýliðana úr Þrótti í næsta leik en ef þær vinna þann leik verða þær með 9 stig eftir 3 leiki. Kjartan ætlar samt ekki að vera of kokhraustur fyrir þeim leik.

„Ég er nú aðeins búinn að horfa á Þrótt og þær líta bara mjög vel út. Það verður alveg erfiður leikur. Voru Valur ekki bara að vinna þær 2-1? Það verður líka brekka þar, við þurfum allavega að gíra okkur vel upp í þann leik. Það er stutt á milli leikja og ég gæti alveg trúað að þessi leikur myndi sitja aðeins í okkur. Gras og þreyta frá síðasta leik. Nú þurfum við að endurheimta orkuna vel fyrir næsta leik.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×