Erlent

Upplýsingafundirnir sem urðu að kosningafundum

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, á upplýsingafundi vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, á upplýsingafundi vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. AP/Alex Brandon

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur breytt upplýsingafundum ríkisstjórnar sinnar um faraldur nýju kórónuveirunnar í pólitískan viðburð þar sem hann dreifir kosningaáróðri og jafnvel rangfærslum. Fundirnir sem eru haldnir daglega snúast um Trump og lítið annað og hann notar þá til að fá útrás í stað kosningafunda.

Á fundunum hefur forsetinn hellt sér yfir fjölmiðlafólk og reynt að breyta sögunni varðandi viðbrögð hans og ríkisstjórnar hans við faraldrinum. Þá hefur Trump sýnt myndband sem framleitt var af starfsmönnum Hvíta hússins og að virðist í pólitískum tilgangi.

Bandaríkin hafa orðið hvað verst úti í faraldrinum og hafa minnst 671 þúsund smitast af Covid-19, sjúkdómnum sem nýja kórónuveiran veldur, og minnst 33.286 hafa dáið.

Fundirnir eru mislangir en hafa staðið yfir í tæpar þrjár klukkustundir.

Hefur stært sig af áhorfi

Trump er mjög ánægður með fundina og hefur hann stært sig af því hve mikið áhorf þeir fá. Hann er það ánægður með fundina að ráðgjafar hans hafa ráðlagt honum að draga í land, stytta fundina og hætta að rífast við blaðamenn.

Samkvæmt heimildum Reuters innan Hvíta hússins er Trump þó þeirrar skoðunar að fundirnir séu frábærir og er hann mjög ánægður með áhorfið. Hann nýtir sér upplýsingafundina í stað kosningafunda sem hann getur ekki haldið vegna faraldursins. Kosningafunda þar sem þúsundir áhorfenda hlusta á hann af áfergju þar sem hann leikur af fingrum fram og ausa hann lofi.

Upplýsingafundirnir og viðhorf Trump gagnvart þeim virðist hafa breyst á mánudaginn. Um síðust helgi hafði forsetinn verið verulega ósáttur við fréttir um að hann og ríkisstjórn hans hafi dregið lappirnar í því að bregðast við heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar og ekki hlýtt á skilaboð vísindamanna og sérfræðinga.

„Ég gerði allt rétt,“ sagði Trump meðal annars. Hér að neðan má sjá samskipti Trump og Paula Reid frá CBS þegar hún spurði forsetann út í hvað hann hefði gert í febrúar til að sporna gegn útbreiðslu veirunnar.

Hann hafði þá stært sig af því að hafa bannað ferðir fólks frá Kína, þó rannsóknir hafi sýnt að eftir að bannið var sett á komu tugir þúsunda frá Kína til Bandaríkjanna og að veiran var þegar farin að dreifast þar innanlands.

Trump sagðist hafa gert margt en nefndi ekkert sérstaklega. Í stað þess skammaðist hann yfir fréttakonunni og fór að tala um Joe Biden og Demókrataflokkinn.

Þar um helgina hafði Anthony Fauci, forstöðumaður Ofnæmis- og smitsjúkdómastofnunar Bandaríkjanna og einn helsti sóttvarnasérfræðingur ríkisins, sagt að hægt hefði verið að bjarga lífum ef ríkið hefði gripið fyrr til aðgerða. Því var tekið sem gagnrýni á Trump.

Á sunnudaginn endurtísti Trump svo tísti þar sem stóð að tíma væri kominn til að reka Fauci.

Á fundinum á mánudaginn bauð Trump Fauci í pontu til að segja nokkur orð. Fauci byrjaði ræðu sína á því að draga úr ummælum sínum um helgina. Hann sagðist hafa verið að svara spurningu sem byggði á ímyndaðri tilgátu og ekki gagnrýna Trump.

Þegar Trump var spurður að því hvort hann ætlaði að reka Fauci og af hverju hann hefi birt áðurnefnt tíst, sagði hann það ekki standa til.

„Ég endurtísti einhvern. Ég veit ekki, þeir sögðu „reka“, það skiptir ekki máli,“ sagði Trump. „Ég kann vel við hann. Mér finnst hann frábær. Það eru ekki allir ánægðir með Anthony. Það eru ekki allir ánægðir með alla.“

Á fundinum í gær sagðist Trump reiður yfir því að honum hafi ekki verið sagt fyrr að útbreiðsla nýju kórónuveirunnar væri heimsfaraldur. Nefndi hann Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, og Shinzo Abe, forsætisráðherra Japan.

Hann sagði faraldurinn hafa farið illa með efnahag allra 184 ríkja heimsins og að það yrði skoðað með nánum hætti. Svo virðist sem hann hafi verið að beina orðum sínum að WHO, sem hann hefur gagnrýnt harðlega fyrir að bregðast ekki nógu hratt við útbreiðslu veirunnar og fyrir að lúffa fyrir Kommúnistaflokk Kína og í raun hjálpa þeim að hylma yfir uppruna faraldursins. Það er þó óljóst hvað hann var að tala um.

Vert er þó að benda á að Þjóðverjar virðast hafa undirbúið sig mjög vel fyrir faraldurinn og hafa gripið til umfangsmikillar skimunar fyrir veirunni, sem Trump hefur verið gagnrýndur fyrir að gera ekki. Í Þýskalandi hafa minnst 137.698 greinst með veiruna og 4.052 dáið. Þar að auki eru Þjóðverjar byrjaðir að aflétta höftum í skrefum.

Þá hefur Trump áður sagt að hann hafi vitað mjög snemma að um heimsfaraldur væri að ræða og hann hafi alltaf tekið veirunni alvarlega. Sem er ekki rétt.

Sjá einnig: Trump-liðar reyna að endurskrifa söguna

Fyrr í vikunni hafði Trump lýst því yfir að hann gæti þvingað ríkisstjóra Bandaríkjanna til að aflétta höftum og draga úr félagsforðun, þvert á vilja þeirra. Ríkisstjórar eins og Andrew M. Cuomo í New York, hótuðu lögsóknum og öðru ef forsetinn reyndi að grípa fyrir hendurnar á þeim og draga úr félagsforðun áður en þeir væru tilbúnir.

Sjá einnig: Trump líkir sér við skipstjórann á Bounty í deilum við ríkisstjóra

Svo virðist sem hann hafi gefið eftir í þeirri baráttu í gær, þegar hann birti viðmið fyrir ríkisstjóra varðandi félagsforðun og hvernig draga mætti úr henni til að koma hjólum atvinnulífsins aftur af stað. Trump sagði það alfarið í höndum ríkisstjóra.

Forsetinn gagnrýndi þó ónefnda ríkisstjóra Bandaríkjanna og sagði þá hafa fengið of mikið hrós fyrir viðbrögð þeirra og aðgerðir vegna faraldursins. Hann sagði suma hafa staðið sig mjög vel, en aðrir hafi fengið of mikið hrós.

Trump var spurður út í mótmælendur sem hafa verið að koma saman í hópum víða um Bandaríkin og mótmæla félagsforðun. Samtök íhaldsmanna hafa skipulagt mótmælin og til að mynda komu þúsundir saman í Michigan í gær. Búið er að skipuleggja frekari mótmæli í fleiri ríkjum á næstunni.

Forsetinn var sérstaklega spurður hvort þetta fólk ætti ekki að hlusta á embættismenn en sagði að þessir mótmælendur virtust vera ánægðir með hann sjálfan, sem virðist rétt, og að þeir myndu hlusta á hann.

Hann sagði þeim þó ekki að snúa aftur til síns heima og halda sig þar. Heldur ýtti hann undir mótmæli þeirra og sagðist vilja draga úr félagsforðun.

„Ég held þeir séu að hlusta, ég held þeir hlusti á mig. Þeir virðast vera mótmælendur sem er vel við mig og virða þessa skoðun, og mín skoðun er sú sama og nánast allra ríkisstjóra. Þeir vilja allir opna. Enginn vill halda öllu lokuðu en þeir vilja opna á öruggan hátt og það viljum við líka.“


Tengdar fréttir

Merkja Trump ávísanir vegna faraldursins

Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur gert skattinum að prenta nafn Donald Trump, forseta, á þær ávísanir sem sendar verða á almenning í Bandaríkjunum vegna efnahagsaðgerða yfirvalda sökum faraldurs nýju kórónuveirunnar.

Trump-stjórnin sögð hafa vanrækt undirbúning um mánaðaskeið

Um tveir mánuðir liðu frá því að Bandaríkjastjórn fékk fyrstu upplýsingarnar um kórónuveirufaraldurinn í Kína þar til alríkisstjórnin greip til umtalsverðra aðgerða til að hefta útbreiðsluna. Afneitun og vanvirkni í röðum æðstu ráðamanna er sögð hafa átt þátt í að tímanum sem hefði getað nýst í undirbúning var kastað á glæ.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×