Álagning kaupmanna vel rífleg 13. október 2005 19:15 "
Þessar niðurstöður koma mér á óvart og sýna að innflytjendur hafa verið ríflegir í allri álagningu sinni," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Nýbirt verðkönnun hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat, sýnir að tugprósentamunur var á verðum á fatnaði og skóm hérlendis samanborið við þjóðir innan ESB. Reyndist Ísland dýrast í öllum þeim tólf flokkum sem kannaðir voru en verð 285 vörutegunda voru bornar saman. Um er að ræða tölur frá árinu 2003 þar sem borin voru saman verð milli allra sambandsríkjanna, þriggja ríkja sem sótt hafa um aðild og EFTA ríkjanna Sviss, Noregs og Íslands. Er niðurstaðan sú að Ísland reyndist í heildina 49 prósent dýrari en meðaltal Evrópusambandsins og ellefu prósentum dýrari en Noregur sem kom næst. Sé litið á hvern flokk fyrir sig reyndist Ísland dýrast hvað varðaði skófatnað fyrir ungabörn en þar munaði 60 prósentum frá meðaltali Evrópuríkja. Skófatnaður kvenna reyndist 58 prósent dýrari en meðaltalið og skófatnaður karla 54 prósent dýrari. Minnstu munaði á herrafatnaði sem var þó 39 prósent dýrari hér en í Evrópu. Ódýrustu þjóðirnar í könnuninni reyndust vera Búlgaría og Rúmenía en verð í flestum flokkum þar voru um 40 til 50 prósent undir meðaltali ríkja ESB. Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, sagðist ekki hafa skýringar á reiðum höndum á þessum mikla mun milli Íslands og Evrópu. "Hins vegar er talað um að innflytjendur greiði að meðaltali fimmtán prósent meira fyrir vöruna hingað komna en aðilar í Evrópusambandinu greiða fyrir sína vöru. Einnig má benda á að raunverðslækkun á fatnaði hér á landi hefur verið fimm prósent síðustu tíu árin og á sama tíma hefur launavísitalan hækkað um 30 prósent. Það má því segja að þessir hlutir hafi lækkað en þetta skýrir ekki þennan mikla mun."
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira