Fuglar geti borið flensu hingað 13. október 2005 19:15
Óttast er að farfuglar sem ferðast heimsálfa á milli beri fuglaflensu landa á milli og jafnvel hingað til lands, segir dýralæknir í alifuglasjúkdómum. Í héraði í Vestur-Kína hafa 178 fuglar, villtar gæsir sem sneru frá vetursetu í Indlandi, fundist dauðar af völdum veirunnar, afbrigðinu sem getur borist manna á milli. Þetta vekur óneitanlega upp þá spurningu hvort farfuglar geti verið smitberar og dreift veirunni hingað til lands. Svarið við þeirri spurningu er játandi segir Jarle Reiersen, dýralæknir í alifuglasjúkdómum, og minnir á að fuglaflensa hafi fundist í urtönd í Mývatnssveit árið 1980. Eftir þann tíma er ekkert vitað. Reiersen segir að það séu einfaldlega ekki til rannsóknir þar sem þessi mál hafi verið skoðuð. Fuglaflensa gæti því leynst í fuglum á Íslandi án þess að vitað væri um það. En hverjar yrðu afleiðingarnar ef fuglaflensa bærist í íslenska alifugla? Reiersen segir að samkvæmt þeim varúðarráðstöfunum sem séu inni í áætlunum yfirdýralæknisembættisins sé niðurskurður eina úrræðið sem sé fyrir hendi. Ef fuglaflensan berist inn á stærstu alifuglabúin hérlendis hefði það skelfilegar afleiðingar. Kínversk stjórnvöld hafa flutt meira en þrjár milljónir skammta af bóluefni gegn fuglaflensu til héraðsins í Vestur-Kína en þar á að bólusetja á alla alifugla. Á Íslandi er þó ekki einu sinni vitað hvort sýktir fuglar séu á landinu. Aðspurður hvort Íslendingar hafi sofið á verðinum segir Reiersen að lagt hafi verið til að gerðar yrðu frekari rannsóknir en það skorti fjármagn til þess. Fuglaflensan hefur dregið 54 menn í Asíu til dauða frá því hennar varð vart árið 2003. Sá síðasti lést í Víetnam í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Fleiri fréttir Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Sjá meira