Tjónþolar fá hlut sinn bættan 13. október 2005 19:15 "
Tjónþolar, sem verða fyrir tjóni af völdum vanrækslu byggingarstjóra, geta sett sig beint í samband við tryggingafélag byggingarstjórans. Meginreglan er sú að tryggingin tekur á þeim tilvikum þegar þriðji aðili verður fyrir almennu fjártjóni sem rekja má til þess að byggingarstjórinn fer ekki eftir samþykktum uppdráttum, lögum og reglugerðum," segir Rafn Marteinsson, deildarstjóri hjá VÍS. Rafn segir það skipta mestu máli þegar meta á fjártjón af því tagi sem hér um ræðir að orsakasamband sé milli tjónsins og hátternis þess sem valdið hefur tjóninu. Ekki mega líta á lokaúttekt húsnæðis sem einhvers konar vottorð um verksmiðjuábyrgð og byggingarstjóri sé ekki þar með laus frá sinni ábyrgð. Íbúar fjölbýlishúss í Grafarholti rekja skemmdir á fimm ára gömlu fjölbýlishúsi til vanefnda verktaka og galla á byggingunni og vilja tjón sitt bætt. Í Fréttablaðinu í gær var fjallað um mál þeirra og þá staðreynd að ekki hafði farið fram lokaúttekt byggingarstjóra á húsnæðinu en einn íbúa hússins hafi óskað eftir að slík úttekt færi fram þar sem byggingarstjórinn hafði ekki sjálfur óskað eftir slíkri úttekt til byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Bjarni Þór Jónsson, staðgengill byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar, segir að starfsábyrgðartrygging taki strax gildi og gefið hafi verið út byggingarleyfi. "Það getur enginn byggingarstjóri skráð sig á verk nema hann hafi lögbundna tryggingu og við höfum upplýsingar um það frá umhverfisráðuneytinu hverjir hafa slíkar tryggingar. Þannig það er vel fylgst með slíku, " segir Bjarni. Dómskvaddur matsmaður hefur nú verið fenginn til að meta hvort að rekja megi þær skemmdir sem orðið hafa á húsinu til vanrækslu verktakafyrirtækisins sem annaðist bygginguna eða byggingarstjóra. Verktakinn neitaði að tjá sig um málið þegar Fréttablaðið óskaði eftir viðbrögðum hans.
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira