Assad lofar að draga herinn burt 13. október 2005 18:54
Yfirvöld í Sýrlandi hafa lofað að láta Sameinuðu þjóðunum í té tímaáætlun um brottflutning sýrlenskra hermanna frá Líbanon í næstu viku. Terje Roed-Larsen, sendiboði Sameinuðu þjóðanna, lýsti þessu yfir eftir fund með Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, í sýrlensku borginni Aleppo í gær. Roed-Larsen sagði að á fundinum hefði Assad sagst ætla að draga allt herlið og leyniþjónustuna frá Líbanon. Samkvæmt því ætla sýrlensk yfirvöld að virða ályktun Sameinuðu þjóðanna númer 1559 sem samþykkt var í september síðastliðnum og kveður á um brottflutning hersins frá Líbanon. Roed-Larsen sagði að Assad myndi kynna tímaáætlunina fyrir Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, á fundi í New York í næstu viku. "Fundurinn með Assad var mjög góður og ég er mjög vongóður eftir að forsetinn fullvissaði mig um að Sýrlendingar hygðust virða ályktun 1559," sagði Roed-Larsen. Sýrlendingar hafa verið með herlið í Líbanon síðan árið 1976 þegar borgarastyrjöld geisaði í landinu. Um fjórtán þúsund sýrlenskir hermenn eru í Líbanon núna og í fyrrakvöld fór hluti af um sex þúsund manna herliði, sem er í norðurhluta landsins, aftur til Sýrlands. Sýrlendingar hafa orðið fyrir auknum þrýstingi frá Vesturlöndum, sem og arabalöndunum, eftir að Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, var myrtur í síðasta mánuði. Stjórnarandstaðan í Líbanon sagði Sýrlendinga standa á bak við morðið. Sýrlenskir ráðamenn funduðu með líbönskum ráðamönnum 5. mars. Eftir fundinn tilkynnti Assad að herliðið yrði flutt á brott í tveimur áföngum. Roed-Larsen sagði að í fyrri áfanganum yrðu her- og leyniþjónustumenn fluttir í Bekaa-dalinn í Líbanon fyrir lok þessa mánaðar. Í seinni áfanganum yrði allt herliðið flutt á brott, starfsmenn hersins og leyniþjónustunnar og allt sem þeim fylgir.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Sjá meira