Erlent

1,3 milljarðasti Kínverjinn fæddur

Kínverjar eru orðnir 1,3 milljarðar talsins og upphófst mikið fjölmiðlafár þegar tímamótabarnið, Zhang Yichi, fæddist síðasta fimmtudag. Í kjölfarið buðu fyrirtæki foreldrum hans gull og græna skóga fyrir að láta hann koma fram í auglýsingum, svo sem fyrir bleyjur og þurrmjólk, að því er BBC greinir frá. Foreldrum hans líst hins vegar ekkert á frægðina. "Zhang Yichi er of ungur og of miklar athafnir vegna auglýsinga hafa skaðleg áhrif á vöxt hans," sagði Zhang Tong, faðir hans, í viðtali við kínverskt dagblað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×