Amandine Henry skoraði sigurmark franska liðsins á 106. mínútu. Þetta er í þriðja sinn í röð sem Frakkar komast í 8-liða úrslit á HM kvenna.
Þar mætir Frakkland annað hvort heimsmeisturum Bandaríkjanna eða Spáni. Liðin eigast við í Reims á morgun.
Valérie Gauvin skoraði eftir rúmlega 20 mínútna leik en markið var dæmt af vegna brots á Barböru, markverði Brasilíu. Að sjálfsögðu kom VARsjáin þar við sögu.

Skömmu síðar varði Sarah Bouhaddi, markvörður Frakklands, skalla Cristiane í slána. Hún kom hins vegar engum vörnum við þegar Thaisa jafnaði metin á 64. mínútu með góðu vinstri fótar skoti úr vítateignum. Thaisa lék með Grindavík í Pepsi-deild kvenna fyrir tveimur árum.
Fleiri urðu mörkin í venjulegum leiktíma ekki og því þurfti að framlengja. Á lokamínútu fyrri hálfleiks framlengingarinnar bjargaði Griedge Mbock Bathy frábærlega á línu frá Debinhu og kom í veg fyrir að Brassar kæmust yfir.
Í upphafi seinni hálfleiks framlengingarinnar skoraði Henry svo sigurmark Frakka eftir aukaspyrnu Amel Majri, samherja síns hjá Lyon, af hægri kantinum. Lokatölur 2-1, Frakklandi í vil.