Pogba ekki búinn að jafna sig á framkomu Mourinho og vill út Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. maí 2019 14:00 Paul Pogba vill fara til Madrídar. vísir/getty
Paul Pogba er staðráðinn í að yfirgefa Manchester United í sumar þar sem að eitraður andi José Mourinho svífur enn yfir vötnum á Old Trafford, að því fram kemur í frétt London Evening Standard. Heimildarmenn nánir Pogba segja hann vilja komast burt þrátt fyrir að hann hafi unnið stríðið gegn Portúgalnum sem að var rekinn í desember. Eftir brotthvarf Mourinho spilaði Pogba stórkostlega í rúma tvo mánuði en hefur nú lítið getað að undanförnu samhliða liðinu. Pogba er sagður enn vera svekktur yfir framkomu Mourinho í sinn garð en hann var sviptur titlinum varafyrirliði og ekki notaður í stórleikjum rétt áður en að Mourinho var rekinn. Hann er sagður ekki vera búinn að fyrirgefa yfirmönnum á Old Trafford það, að stíga ekki inn inn fyrr og það gæti komið í bakið á United-mönnum. Nú er hann sagður ólmur vilja komast til Real Madrid. Ed Woodward og félagar á skrifstofu United hafa gefið út að Pogba sé ekki til sölu en þeir gætu nú lent í annarri baráttu um að halda Frakkanum eftir að Barcelona reyndi að fá hann síðasta sumar. Það hjálpar ekki Manchester United að vera ekki í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en Pogba á þó tvö ár eftir af samningi sínum við United sem hægt er að framlengja um eitt ár.
Enski boltinn Mest lesið Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Everton - Arsenal | Skytturnar vilja skjóta sér aftur upp á topp Enski boltinn Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Everton - Arsenal | Skytturnar vilja skjóta sér aftur upp á topp Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Sjá meira