Klopp: Ljótur sigur en hverjum er ekki sama? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. mars 2019 18:28 Þrjú stig og Liverpool komið á toppinn. Klopp var ánægður með dagsverkið. vísir/getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var að vonum hinn kátasti eftir sigurinn á Tottenham í dag. Hann viðurkenndi þó að Rauði herinn hefði ekki spilað vel í seinni hálfleiknum. Sigurmark Liverpool kom á lokamínútunni þegar boltinn fór af Toby Alderweireld og í netið. Með sigrinum komst Liverpool á topp ensku úrvalsdeildarinnar. „Ég var nokkuð rólegur. Þessi staða kom óvænt upp. Ég sá skallann frá Mohamed Salah og svo ekki meir. Ég hafði ekki hugmynd hvernig boltinn fór inn,“ sagði Klopp í leikslok. „Ég var ekki sáttur með að við fengum á okkur mark en kannski þurftum við þess. Í fyrri hálfleik skoruðum við stórkostlegt mark og fengum frábær færi. Í þeim seinni vorum við þungir og náðum okkur ekki á strik.“ Klopp var ánægður með hvernig hans menn brugðust við jöfnunarmarki Tottenham. „Við komumst aftur í gang eftir jöfnunarmarkið og fengum færi. Við erum að keppa um titilinn við besta lið í heimi [Manchester City] og vorum að spila við eitt það besta í dag. Þetta var erfitt verkefni. Það eru til 500 leiðir til að vinna leiki og sigurinn í dag var frekar ljótur. En hverjum er ekki sama?“ sagði Klopp.
Enski boltinn Mest lesið „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ Enski boltinn Kærastan tók eftir því að eitthvað var að Handbolti „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Íslenski boltinn „Haaland er þetta góður“ Enski boltinn Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Körfubolti Lygilega jafnt á toppnum eftir sigur AC Milan Fótbolti Ítalinn hoppaði upp fyrir Alcaraz eftir sigur í París Sport Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Handbolti Hólmbert skoraði í Suður-Kóreu og stjórnaði sigursöngvum eftir leik Fótbolti Hermann tekinn við Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ „Haaland er þetta góður“ Annað tap spútnikliðsins kom í Manchester Loksins West Ham-sigur í London Úlfarnir ráku Pereira Engin klipping á næstunni: Miður sín en með augun á 8. desember Vara við því að „töfradrykkur“ Haaland geti valdið matareitrun Liverpool loks á sigurbraut á ný Pedro afgreiddi Tottenham Arsenal með sjö stiga forystu á toppnum Andri Lucas í beinni í Doc Zone: „Við setjum hann í skeytin“ Amad bjargaði stigi fyrir United Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Liverpool féll síðast þegar liðið tapaði fimm í röð „Ég er ekki Schmeichel í dulargervi“ Arne Slot: „Þetta er síðasta spurningin sem ég átti von á“ Segir sönginn um Jota á tuttugustu mínútu hafa áhrif á leik Liverpool Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Fullkomin þrenna kom Lampard úr sjöunda himni Jóladagskráin klár: Hefðin brotin og aðeins einn leikur annan í jólum Sjáðu besta liðið í föstum leikatriðum leika listir sínar Barcelona skuldar mest en Tottenham er númer tvö Mikilvægt fyrir United að hamra járnið meðan það er heitt Félagið í greiðslustöðvun en borgaði öll laun degi fyrr Skortir Liverpool breidd þrátt fyrir gríðarleg fjárútlát síðasta sumar? Hetja Englands á EM sleit krossband Lofar frekari fjárfestingum Fantasýn: „Þessi vörn er eitthvað skrímsli“ Scholes hættir og setur einhverfan son sinn í fyrsta sætið Carrick í einkaviðtali: Sigurinn á Anfield stór stund fyrir Man. Utd Sjá meira