Arsenal ekki í vandræðum með Blackpool│Newcastle þarf að spila aftur við Blackburn Arnar Geir Halldórsson skrifar 5. janúar 2019 19:15 Arsenal vann öruggan sigur vísir/getty Arsenal átti ekki í neinum vandræðum með C-deildarlið Blackpool í enska bikarnum í dag en yfirburðir Arsenal voru töluverður og unnu þeir að lokum þriggja marka sigur. Ungstirnið Joseph Willock kom Arsenal í 2-0 í fyrri hálfleik og Alex Iwobi gulltryggði svo sigurinn á 82.mínútu. Á sama tíma var Newcastle United í vandræðum með B-deildarlið Blackburn Rovers. Bradley Dack kom gestunum í Blackburn yfir í upphafi síðari hálfleiks en Matt Ritche bjargaði Newcastle fyrir horn með marki úr vítaspyrnu skömmu fyrir leikslok. Liðin munu því mætast aftur en þá á heimavelli Blackburn. Crystal Palace marði sigur á Grimsby þar sem Jordan Ayew gerði eina mark leiksins á 86.mínútu en Palace lék manni fleiri frá 2.mínútu leiksins þar sem Andrew Fox fékk að líta rauða spjaldið í upphafi leiks. Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn