Juventus vann nágrannaslaginn og fór á toppinn á ný

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ronaldo og félagar eru komnir aftur á toppinn
Ronaldo og félagar eru komnir aftur á toppinn vísir/getty
Juventus endurheimti toppsæti Seria A deildarinnar með eins marks sigri á Torino í nágrannaslag í kvöld.

Matthijs de Ligt gerði eina mark leiksins, það kom á 70. mínútu eftir sendingu Gonzalo Higuain inn í teiginn.

Juventus var með yfirburði í leiknum en náði þó ekki að nýta sér þá frekar og varð mark de Ligt úrslitamarkið, lokatölur 1-0.

Með sigrinum fer Juventus í 29 stig, stigi meira en Inter þegar bæði lið hafa leikið 11 leiki. Torino er hins vegar með 11 stig í 13. sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira