Öll leikhúsgögnin komin á borð Lilju sem leggst undir feld Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. október 2019 17:00 Sá sem verður skipaður Þjóðleikhússtjóri tekur til starfa þann 1. janúar. Vísir/Egill
Mennta- og menningarmálaráðherra ætlar að taka viðtöl við umsækjendur og í framhaldinu skipa Þjóðleikhússtjóra til næstu fimm ára. Þjóðleikhúsráð, Capacent og valnefnd hafa lokið störfum í málinu og skilað gögnum til ráðherra. Lilja Alfreðsdóttir segir í samtali við Vísi að valnefndin hafi lokið verkum sínum í gærkvöldi. „Nú fer ég að leggjast undir feld,“ segir Lilja. Ráðherra segist ætla að leggjast yfir næstu skref í málinu, þar með talið að taka viðtöl við umsækjendur, og gerir ráð fyrir að sú vinna fari fram í næstu viku. Lilja mælti fyrir frumvarpi sínu um sviðslistir á Alþingi í dag þar sem meðal annars er sett hámark á tíu ár í starfi Þjóðleikhússtjóra.Sjö um hituna Sjö umsækjendur voru um starf Þjóðleikhússtjóra sem auglýst var laust til umsóknar þann 1. maí en umsóknarfrestur var til 1. júlí. Ari Matthíasson hefur gegnt starfinu undanfarin tæp fimm ár og sækist eftir endurráðningu. Kristín Eysteinsdóttir Borgarleikhússtjóri og Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri eru sömuleiðis meðal umsækjenda. Aðrir umsækjendur eru Brynhildur Guðjónsdóttir leikari og leikstjóri, Guðbjörg Gústafsdóttir og Stefán Sturla Sigurjónsson verkefnastjóri, leikari og rithöfundur.Leikhúsheimurinn býður spenntur eftir ákvörðun Lilju sem er á engan hátt bundin af niðurstöðu valnefndar, Þjóðleikhúsráðs og Capacent.Vísir/VilhelmLilja upplýsir að Þjóðleikhúsráð hafi gripið fyrsta boltann og fengið ráðgjafa frá Capacent til liðs við sig. Samkvæmt upplýsingum Vísis fóru umsækjendur fyrst í viðtal hjá ráðgjafa Capacent og Halldóri Guðmundssyni, formanni Þjóðleikhúsráðs. Í framhaldinu voru umsækjendur boðaðir á fund Capacent og spurðir frekar út úr. Þjóðleikhúsráð skilaði af sér og í framhaldinu var skipuð þriggja manna valnefnd í mennta- og menningarmálaráðuneytinu.Þriggja manna valnefnd Samkvæmt heimildum Vísis skipuðu valnefndina Auður B. Árnadóttir og Stefán Baldursson, skrifstofustjórar í mennta- og menningarmálaráðuneytinu, og Jóna Finnsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Listaháskóla Íslands. Valnefndin lauk sem fyrr segir störfum í gærkvöldi og er boltinn nú hjá menntamálaráðherra.Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri hefur áhuga á að stýra leikhúsinu áfram næstu fimm árin.Vísir/EgillMikil spenna ríkir fyrir skipuninni og hafa alls kyns kenningar verið á lofti um hver niðurstaðan verði. Þá hafa þrír umsækjendur sem taldir eru líklegir til að fá starfið verið í eldlínunni undanfarna mánuði í ólíkum málum þó.Standa í ströngu Birna Hafstein, formaður Félags íslenska leikara, hefur kvartað undan framgöngu Ara í starfi Þjóðleikhússtjóra. Hann hefur svarað þeim ásökunum og segir Birnu hafa farið um með ósannindi um sig, sína persónu og starfsemi leikhússins. Ríkisendurskoðun hefur séð ástæðu til þess að gera stjórnsýsluúttekt á Ríkisútvarpinu hvar Magnús Geir er útvarpsstjóri. Ríkisendurskoðandi hefur sagt ýmsar ástæður fyrir því að könnuð sé fjárhagsstaða stofnunarinar, hagkvæmni og skilvirkni umfram það sem hefðbundin fjárhagsendurskoðun leiði í ljós. Þá stendur Kristín Eysteinsdóttir Borgarleikhússtjóri í ströngu fyrir dómstólum þar sem vænta má dóms á næstu dögum í máli Atla Rafns Sigurðssonar leikara. Honum var sagt upp störfum í Borgarleikhúsinu, ómaklega að eigin sögn, og hefur krafist skaðabóta.
Leikhús Menning Stjórnsýsla Tengdar fréttir Þjóðleikhúsráð afgreiðir þjóðleikhússtjóraumsóknirnar frá sér í næsta mánuði Capacent er ráðinu innan handar við afgreiðslu umsóknanna. 16. ágúst 2019 12:53 Sjö vilja verða þjóðleikhússtjórar Ari Matthíasson sækist eftir endurráðningu. 3. júlí 2019 16:53 Umsögn Þjóðleikhúsráðs um umsækjendur liggur fyrir Sjö sóttu um stöðu þjóðleikhússtjóra, þar á meðal núverandi útvarpsstjóri, þjóðleikhússtjóri og borgarleikhússtjóri. 29. september 2019 10:21 Mest lesið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið Sonurinn skírður Lífið „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Lífið Gylfi og Alexandra eiga von á barni Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Bernard Hill er látinn Lífið Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Lífið Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Lífið Fleiri fréttir Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein Sjá meira
Þjóðleikhúsráð afgreiðir þjóðleikhússtjóraumsóknirnar frá sér í næsta mánuði Capacent er ráðinu innan handar við afgreiðslu umsóknanna. 16. ágúst 2019 12:53
Umsögn Þjóðleikhúsráðs um umsækjendur liggur fyrir Sjö sóttu um stöðu þjóðleikhússtjóra, þar á meðal núverandi útvarpsstjóri, þjóðleikhússtjóri og borgarleikhússtjóri. 29. september 2019 10:21