Erlent

Sau­tján ára palestínskur nemi við Harvard sendur frá Banda­ríkjunum

Sylvía Hall skrifar
Harvard háskóli talinn með þeim betri í heiminum.
Harvard háskóli talinn með þeim betri í heiminum. Vísir/Getty
Hinn sautján ára gamli Ismail Ajjawi átti að hefja skólagöngu sína við Harvard háskóla í vikunni. Þegar hann hafði lent á flugvellinum í Boston var honum haldið í átta klukkustundir áður en hann var aftur sendur úr landi.

Ajjawi er búsettur í Líbanon og hafa yfirvöld staðfest að honum hafi verið vísað úr landi. Að sögn Ajjawi er ástæðan sú að innflytjendaeftirlitið var ósátt við athugasemdir vina hans á samfélagsmiðlum en yfirvöld vestanhafs segjast ekki geta tjáð sig um málið.

Í samtali við Harvard Crimson lýsir Ajjawi því þegar starfsmaður á flugvellinum leiddi hann inn í herbergi þar sem sími hans og tölva voru tekin af honum og grandskoðuð. Starfsmaðurinn hafi í kjölfarið öskrað á Ajjawi eftir að hafa fundið athugasemdir vina hans sem innihéldu ummæli sem væru mótfallin Bandaríkjunum.

„Hún sagðist hafa fundið athugasemdir frá fólki á vinalistanum mínum sem væru mótfallin Bandaríkjunum,“ sagði hann og bætti við að hann hefði aldrei nokkurn tímann birt færslur sem innihéldu pólitísk viðhorf.

Nýjar reglur leyfa yfirvöldum að skoða samfélagsmiðla 

Ajjawi segir starfsmanninn hafa spurt sig út í trúarbrögð sín og fleira en talsmaður utanríkisráðuneytisins sagði það ekki vera mögulegt að vísa fólki úr landi vegna skoðana sem væru í samræmi við lög og rúmuðust innan tjáningarfrelsisákvæða stjórnarskrár, þó hann gæti ekki tjáð sig um þetta einstaka mál.

Í sumar var greint frá því að stór meirihluti umsækjenda um vegabréfásritun myndu þurfa að veita stjórnvöldum þar í landi leyfi til þess að skoða samfélagsmiðlaaðganga þeirra til þess að komast inn í landið.

Sjá einnig: Skilyrði fyrir vegabréfsáritun að stjórnvöld fái að gaumgæfa samfélagsmiðla umsækjenda

Samkvæmt nýju reglunum þurfa umsækjendur um áritun að skila inn notendanöfnum sínum á samfélagsmiðlum auk allra netfanga og símanúmera sem þeir hafa notast við síðastliðin fimm ár fram að umsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×