Fótbolti

Bale hetja Wales | Austurríkismenn skoruðu sex

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gareth Bale reyndist hetja Wales í kvöld
Gareth Bale reyndist hetja Wales í kvöld vísir/getty
Gareth Bale tryggði Wales sigur á Aserbaísjan í undankeppni EM 2020 í fótbolta. Króatar og Austurríkismenn völtuðu yfir andstæðinga sína.

Gestirnir frá Aserbaísjan lentu undir í Wales þegar Pavlo Pashaev skoraði sjálfsmark á 26. mínútu og fóru Walesverjar með forystu inn í hálfleikinn.

Aserar jöfnuðu metin eftir um klukkutíma leik en fyrirliðinn Bale skoraði sigurmarkið fyrir Wales með skalla eftir mikinn darraðadans í teignum.

Mikilvægur 2-1 sigur fyrir lærisveina Ryan Giggs í baráttunni um sæti á EM.

Í sama riðli vann Króatía sannfærandi útisigur á Slóvakíu. Nikola Vlasic skoraði fyrir Króatíu á lokamínútu fyrri hálfleiks og kom þeim yfir.

Ivan Perisic, Bruno Petkovic og Dejan Lovren gerðu sitt markið hver í seinni hálfleik og Króatía vann 4-0 sigur.

Austurríkismenn mættu Lettum á heimavelli í G-riðli. Marko Arnautovic kom heimamönnum yfir strax á sjöundu mínútu og sex mínútum síðar var staðan orðin 2-0.

Í seinni hálfleik skoraði Arnautovic annað mark, í þetta skipti úr vítaspyrnu, markmaður Letta lenti í því óláni að skora sjálfsmar og þeir Konrad Laimer og Michael Gregoritsch gerðu sitt markið hvor.

Lokatölur í Austurríki urðu 6-0 og eru Austurríkismenn í öðru sæti G-riðils með níu stig, þremur stigum á eftir Pólverjum sem töpuðu sínum fyrsta leik í kvöld, 2-0 fyrir Slóveníu.

Úrslit kvöldsins:

E-riðill:

Slóvakía - Króatía 0-4

Wales - Aserbaísjan 2-1

G-riðill:

Slóvenía - Pólland 2-0

Austurríki - Lettland 6-0

H-riðill:

Eistland - Hvíta-Rússland 1-2

Þýskaland-Holland 2-4

I-riðill:

Kýpur - Kasakstan 1-1

San Marínó - Belgía 0-4

Skotland -Rússland 1-2




Fleiri fréttir

Sjá meira


×