Fótbolti

LeBron ánægður með LeBron-fagnið hjá Griezmann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Griezmann er hér að taka fagnið góða.
Griezmann er hér að taka fagnið góða. vísir/getty
Frakkinn Antoine Griezmann opnaði markareikning sinn hjá Barcelona um helgina og fagnaði að hætti körfuboltakappans LeBron James.

Hann tók „krítarfagnið“ hans LeBron en notaði þó ekki krít heldur notaði hann „confetti“ í litum Barcelona. Augljóslega útpælt hjá Frakkanum.

LeBron James er mikill knattspyrnuáhugamaður og fagnið fór ekki fram hjá honum. Hann lét Griezmann vita af því sem fannst líklega ekki leiðinlegt að fá þessi skilaboð frá hinum sjálfskipaða konungi NBA-deildarinnar.





Hér má sjá mörkin úr leiknum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×