Upptekinn við að kyssa konuna og missti af því þegar markið hans var dæmt af Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. ágúst 2019 16:30 Wanderson fékk kosinn en ekki markið. Skjámynd/Guardian
Valsbönunum í búlgarska liðinu Ludogorets tókst ekki að koma inn sigurmarki í deildarleik á móti Slavia Sofia á dögunum. Einn leikmaður liðsins hélt hins vegar að hann hefði skorað mark í leiknum og fagnaði því á sérstakan hátt. Brasilíumaðurinn Wanderson Cristaldo Farias hélt að hann hefði skorað fyrsta mark leiksins og hljóp upp í stúku til að smella kossi á eiginkonuna. Hann missti á meðan algjörlega af því að dómari leiksins hafði dæmt markið af vegna rangstöðu. Það tók Wanderson smá tíma að komast að konunni sinni enda þurfti hann að hoppa yfir auglýsingaskilti og finna hana í stúkunni. Þegar Wanderson fékk loksins kossinn sinn var boltinn kominn í gang enda dæmdi dómarinn aukaspyrnu fyrir rangstöðu og leikmenn Slavia Sofia voru ekkert að bíða eftir Wanderson. Wanderson var örlagavaldur í einvíginu við Valsmenn í Evrópudeildinni. Wanderson átti nefnilega stoðsendinguna í jöfnunarmarki Ludogorets í uppbótatíma í fyrri leiknum á móti Val sem fór fram á Valsvellinum. Hann hafði komið inn á sem varamaður. Guardian birti myndband af bæði markinu sem var dæmt af og kossinum. Það fylgir síðan sögunni að leikurinn endaði með markalausu jafntefli.Footballer in Bulgaria rushes to kiss wife in celebration … as goal is disallowed https://t.co/CVA4k0K7JQpic.twitter.com/XpDD2V9tLF — Guardian sport (@guardian_sport) August 27, 2019
Fótbolti Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Sjáðu skalla Hjartar og allt tryllast Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Stjörnur Real Madrid léku sér í stórsigri á Malaga Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Ísak Snær skoraði í svekkjandi jafntefli Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Sjá meira