Stoðsending frá Bale í öruggum sigri Real

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gareth Bale fagnar marki í dag.
Gareth Bale fagnar marki í dag. vísir/getty
Gareth Bale var óvænt í byrjunarliði Real Madrid í dag er liðið vann 3-1 sigur á Celta Vigo í 1. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

Fyrsta markið kom strax á 12. mínútu er Karim Benzema skoraði eftir undirbúning Bale. Eftir laglegan snúning Bale og kom svo með góða fyrirgjöf sem Frakkinn kláraði vel.

Luka Modric fékk svo að líta beint rautt spjald á 56. mínútu eftir að hafa skoðað tæklingu Modric í VARsjánni.

Fimm mínútum síðar skoraði svo Toni Kroos og þriðja og síðasta mark Real en markið skoraðiði Lucas Vazquez.

Heimamenn minnkuðu muninn í uppbótartíma en lokatölur 3-0 sigur Real sem eru komnir með þrjú stig. Barcelona, helstu keppinautar Real, töpuðu í fyrstu umferðinni í gær.





Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira