Arsenal borgar Chelsea átta milljónir punda fyrir eftirmann Koscielny Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. ágúst 2019 08:45 David Luiz. Vísir/Getty
David Luiz yfirgefur Chelsea í annað skiptiðá ferlinum og nú fer hann ekki eins langt og síðast Arsenal hefur gengið frá kaupunum á brasilíska varnarmanninum David Luiz frá Chelsea en kaupin munu ganga í gegn á lokadegi gluggans. Arsenal mun borga Chelsea átta milljónir punda fyrir þennan 32 ára miðvörð sem er að yfirgefa Chelsea í annað skiptið á ferlinum. David Luiz kemur í stað Laurent Koscielny sem Arsenal seldi til Bordeaux fyrir 4,6 milljónir punda. David Luiz fer í læknisskoðun í dag og skrifar eftir það undir tveggja ára samning.Arsenal agree £8m fee with Chelsea for David Luiz, reports @SamJDeanhttps://t.co/xLHEtqx73ppic.twitter.com/rVEwc5KyGy — Telegraph Football (@TeleFootball) August 8, 2019Arsenal er líklegt til að bæta enn frekar í vörnina í dag með því að ganga frá kaupum á bakverðinum Kieran Tierney frá Celtic sem mun kosta 25 milljónir punda. David Luiz hefur samtals spilað í sex og hálft ár hjá Chelsea og er með 11 mörk í 160 úrvalsdeildarleikjum fyrir félagið. David Luiz kom fyrst til Chelsea frá Benfica í janúar 2011 en Chelsea seldi hann svo til Paris Saint Germain í júní 2014. Hann var hins vegar kominn aftur til Chelsea í ágúst 2016 en yfirhefur Chelsea nú í annað skiptið á ferlinum. Chelsea má ekki kaupa nýja leikmenn fyrr en næsta sumar þar sem félagið er í félagsskiptabanni. David Luiz er annar miðvörðurinn sem Chelsea lætur frá sér í sumar því félagið samdi ekki aftur við Gary Cahill sem rann út á samning í sumar. Miðverðir Chelsea eru núna Antonio Rudiger, Kurt Zouma, sem var á láni hjá Everton síðasta vetur, og svo Daninn Andreas Christensen.
Enski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Sjá meira