Sterling með þrennu í stórsigri meistaranna á Lundúnaleikvanginum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sterling skorar sitt þriðja mark og fimmta mark City.
Sterling skorar sitt þriðja mark og fimmta mark City. vísir/getty
Raheem Sterling skoraði þrennu þegar Englandsmeistarar Manchester City rúlluðu yfir West Ham United, 0-5, í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Gabriel Jesus og Sergio Agüero voru einnig á skotskónum.

Leikurinn var sögulegur fyrir þær sakir að í fyrsta sinn í ensku úrvalsdeildinni var mark dæmt af með hjálp myndbands.

Á 53. mínútu skoraði Gabriel Jesus af stuttu færi eftir sendingu Raheems Sterling. Markið var hins vegar dæmt af þar sem Sterling var rétt fyrir innan eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.



Markið sem var dæmt af kom skömmu eftir að Sterling kom City í 0-2. Hann slapp þá í gegn eftir sendingu Kevins De Bruyne og skoraði framhjá Lukasz Fabianski.

City var miklu sterkari aðilinn í leiknum og komst yfir á 25. mínútu. Jesus skoraði þá með lúmsku skoti eftir fyrirgjöf frá Kyle Walker.

Sterling skoraði sitt annað mark á 75. mínútu þegar hann lyfti boltanum yfir Fabianski. Hann skoraði svo sitt þriðja mark og fimmta mark City í uppbótartíma.

Í millitíðinni skoraði Agüero fjórða mark City úr vítaspyrnu. Fabianski varði fyrst frá Agüero en endurtaka þurfti spyrnuna. Argentínumanninum urðu þá ekki á nein mistök í seinna skiptið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira